• Fréttir
  • Tónlistin
    • Útgáfa
      • Freyjukórinn
      • Kvk Akureyrar
      • Kvennakór Suðurnesja
      • Norðurljós
      • Kvk Kaupmannahöfn
      • Léttsveit Rvíkur
      • Kvk Ljósbrá
      • Gospelsystur
      • Seljur
      • Lillukórinn
      • Ymur
      • Kvk Garðabæjar
      • Kvk Hafnarfjarðar
      • Jórukórinn
      • Kvk Reykjavíkur
      • Vox Feminae
    • Landsmót
      • Árið 2020 - Reykjavík
      • Árið 2017 - Ísafjörður
      • Árið 2014 - Akureyri
      • Árið 2011 - Selfoss
      • Árið 2008 - Hornafjörður
      • Árið 2005 - Hafnarfjörður
      • Árið 2002 - Reykjanesbær
      • Árið 1999 - Siglufjörður
      • Árið 1997 - Reykholt í Borgarfirði
      • Árið 1995 - Reykjavík
      • Árið 1992 - Ýdölum
    • Aðildakórar
      • Fyrrverandi aðildarkórar
    • Heiðursviðurkenningar
      • Hrönn Hjaltadóttir
      • Sigurbjörg Aðalsteinsdóttir
      • Aðalheiður Ósk Gunnarsdóttir
      • Gróa María Þorvaldsdóttir
      • Sigríður Anna Ellerup
      • Guðrún Ósk Sæmundsdóttir
      • Heiða Gunnarsdóttir
      • Margrét Pálmadóttir
      • Margrét Bóasdóttir
  • Um Gígjuna
    • Gígjan
    • Tónverkasjóður
    • Fundargerðir
    • Stofnfundur
    • Lög
    • Stjórn
      • Stjórn Gígjunnar 2018-2019
      • Stjórn Gígjunnar 2017-2018
      • Stjórn Gígjunnar 2016-2017
      • Stjórn Gígjunnar 2015-2016
      • Stjórn Gígjunnar 2014-2015
      • Stjórn Gígjunnar 2013-2014
      • Stjórn Gígjunnar 2012-2013
      • Stjórn Gígjunnar 2011-2012
      • Stjórn Gígjunnar 2010-2011
      • Stjórn Gígjunnar 2009-2010
      • Stjórn Gígjunnar 2008-2009
      • Stjórn Gígjunnar 2007-2008
      • Stjórn Gígjunnar 2006-2007
      • Stjórn Gígjunnar 2005-2006
      • Stjórn Gígjunnar 2004-2005
      • Stjórn Gígjunnar 2003-2004
  • Hafa samband
  • Fréttir
  • Forsíða
  • Hafa samband
  • Tónlistin
    • Útgáfa
    • Landsmót
    • Aðildakórar
    • Heiðursviðurkenningar
  • Um Gígjuna
    • Gígjan
    • Tónverkasjóður
    • Fundargerðir
    • Stofnfundur
    • Lög
    • Stjórn
  • 30074169_1661176133951423_1871409583_o

    Landssamband íslenskra Kvennakóra

  • Freyjukórinn
  • jorukorinn2017(1)
  • Kvennakór Reykjavíkur
  • Vortonleikar_2015_Gugga
  • Kvennakor Gardabaejar 1
  • Cantabile1

Áttunda landsmót íslenskra kvennakóra verður haldið á Selfossi 29. apríl til 1. maí 2011

5. október 2009

Þá erum við á Selfossi komnar á fullt með að undirbúa kvennakóramótið 2011.  Við hlökkum ótrúlega mikið til.  Við ætlum að byrja á því að gefa upp dagsetninguna sem er 29. apríl til 1. maí 2011. 

Við sendum í dag bréf á alla gististaði á Selfossi, Hveragerði og nágrenni og biðjum þá að taka frá eins mikla gistingu og hægt er.  Við munum svo fylgja bréfinu eftir með símtali í næstu viku. Vonandi á eftir að fara vel um alla.

Við höldum að það  sé alveg óhætt að búast við frábæru móti miðað við stemminguna sem ríkir hérna hjá okkur í Jórukórnum á Selfossi.

Sjá nánari upplýsingar um landsmótið hér.

Lesa meira

Kvennakór Reykjavíkur leitar að nýjum stjórnanda

5. október 2009


Kvennakór Reykjavíkur óskar eftir að ráða kórstjóra til starfa. Ráðningartími er frá 1. desember 2009.

Sigrún Þorgeirsdóttir, sem stjórnað hefur kórnum í 12 ár, hefur sagt upp störfum og mun hætta um næstu áramót. 

Kórinn æfir að jafnaði tvisvar í viku og heldur tóneika um jól og á vorin. Umsækjendur eru vinsamlega beðnir um að senda umsóknir á netfangið kvkor(hjá)mmedia.is. Umsóknarfrestur er til 5. október 2009.

Frekari upplýsingar um starfið og Kvennakór Reykjavíkur er að finna á heimasíðu kórsins.


Lesa meira

Nýjir kórbúningar á 8. starfsári Kvennakórs Akureyrar

17. september 2009

Kvennakór Akureyrar er nú að byrja sitt 8. starfsár og var fyrsta æfing vetrarins haldin 13. september, en kórinn hafði áður tekið þátt í hinni árlegu Akureyrarvöku sem haldin var 29. ágúst.
Á þessa fyrstu æfingu mættu um 70 konur, hressar og endurnærðar eftir gott sumarfrí og tilbúnar að syngja af hjartans lyst. Óskað hafði verið eftir nýjum konum í kórinn og mættu um 10 konur í raddprufu fyrir æfinguna.

Dagskráin fram að jólum er metnaðarfull og skemmtileg og efnisskráin er fjölbreytt að vanda. Daníel Þorsteinsson er áfram stjórnandi kórsins og Mikael Jón Clarke hefur tekið að sér að stjórna raddæfingum einu sinni í mánuði og er það mikill fengur fyrir kórinn.

Nú á haustmánuðum var tekið í notkun nýtt útlit á vefsíðu kórsins. Vefsíðan er enn í vinnslu og á eftir að bæta inn á hana upplýsingum, myndum og fleiru.
Þess má einnig geta að kórinn hefur eignast nýjan kórbúning, sem eru dökkrauðir kjólar eins og sjá má á meðfylgjandi mynd sem tekin var í vorferð kórsins á Neskaupsstað helgina 5. – 7. júní síðast liðinn.

Lesa meira

Léttsveit Reykjavíkur í Grindavíkurkirkju 26. september

16. september 2009


Léttsveit Reykjavíkur heldur tónleika laugardaginn 26. september kl. 17.00 í Grindavíkurkirkju.

Tónleikarnir bera heitið Óskalög sjómanna en verða þó tileinkaðir íslenskum sjómannskonum. Kórinn mun flytja lög sem heyrðust oft í óskalagaþættinum Á frívaktinni.

Meðal laga sem flutt verða á tónleikunum eru: Brennið þið vitar, Heyr mína bæn, Ég bíð við bláan sæ, Komu engin skip í dag og Sjómannasyrpa. Kórinn telur 106 konur og er án efa stærsti kór landsins.

Stjórnandi Léttsveitarinnar er Jóhanna V. Þórhallsdóttir. Hljómsveitina skipa þau Aðalheiður Þorsteinsdóttir og Tómas R. Einarsson.

Lesa meira
  • Fyrri
    • 1
    • ..
    • 100
    • 101
    • 102
    • 103
    • 104
    • 105
    • 106
    • 107
    • 108
    • 109
    • 110
    • ..
    • 189
  • Næsta

Eldri fréttir

  • Landsmót Gígjunnar haldið í maí 2023
    31. ágúst 2022
  • Landsmóti frestað til 2023
    25. janúar 2021
  • Verklagsreglur um æfingafyrirkomulag á tímum samkomutakmarkana fyrir kvennakóra innan Gígjunnar
    10. september 2020
  • Landsmót Gígjunnar haldið 16-18 sept 2021
    11. júní 2020
  • Landsmóti Gígjunnar frestað
    14. mars 2020
  • Þorravaka Kvennakórs Garðabæjar
    11. febrúar 2020
  • Jólakveðja
    25. desember 2019
  • Jólatónleikar Kvennakórs Hafnarfjarðar
    20. nóvember 2019
  • Aðventutónleikar Kvennakórs Garðabæjar
    19. nóvember 2019
  • Jólatónleikar Kvennakórs Kópavogs
    18. nóvember 2019
  • Jólatónleikar Léttsveitarinnar
    13. nóvember 2019
  • Kvenna megin
    1. nóvember 2019
  • Aðalfundur Gígjunnar 2019
    28. október 2019
  • Mæðradagstónleikar Kvennakórs Akureyrar
    8. maí 2019
  • Dívur – vortónleikar Kvennakórs Suðurnesja
    3. maí 2019
  • Vortónleikar Kvennakórs Kópavogs
    29. apríl 2019

Gígjan, landssamband íslenskra kvennakóra

  • Kleppsvegur 132, 104 Reykjavík
  • gigjan2003@gmail.com
  • 847 1724
  • 690403 3660
© 2025 Gígjan, landssamband íslenskra kvennakóra