• Fréttir
  • Tónlistin
    • Útgáfa
      • Freyjukórinn
      • Kvk Akureyrar
      • Kvennakór Suðurnesja
      • Norðurljós
      • Kvk Kaupmannahöfn
      • Léttsveit Rvíkur
      • Kvk Ljósbrá
      • Gospelsystur
      • Seljur
      • Lillukórinn
      • Ymur
      • Kvk Garðabæjar
      • Kvk Hafnarfjarðar
      • Jórukórinn
      • Kvk Reykjavíkur
      • Vox Feminae
    • Landsmót
      • Árið 2020 - Reykjavík
      • Árið 2017 - Ísafjörður
      • Árið 2014 - Akureyri
      • Árið 2011 - Selfoss
      • Árið 2008 - Hornafjörður
      • Árið 2005 - Hafnarfjörður
      • Árið 2002 - Reykjanesbær
      • Árið 1999 - Siglufjörður
      • Árið 1997 - Reykholt í Borgarfirði
      • Árið 1995 - Reykjavík
      • Árið 1992 - Ýdölum
    • Aðildakórar
      • Fyrrverandi aðildarkórar
    • Heiðursviðurkenningar
      • Hrönn Hjaltadóttir
      • Sigurbjörg Aðalsteinsdóttir
      • Aðalheiður Ósk Gunnarsdóttir
      • Gróa María Þorvaldsdóttir
      • Sigríður Anna Ellerup
      • Guðrún Ósk Sæmundsdóttir
      • Heiða Gunnarsdóttir
      • Margrét Pálmadóttir
      • Margrét Bóasdóttir
  • Um Gígjuna
    • Gígjan
    • Tónverkasjóður
    • Fundargerðir
    • Stofnfundur
    • Lög
    • Stjórn
      • Stjórn Gígjunnar 2018-2019
      • Stjórn Gígjunnar 2017-2018
      • Stjórn Gígjunnar 2016-2017
      • Stjórn Gígjunnar 2015-2016
      • Stjórn Gígjunnar 2014-2015
      • Stjórn Gígjunnar 2013-2014
      • Stjórn Gígjunnar 2012-2013
      • Stjórn Gígjunnar 2011-2012
      • Stjórn Gígjunnar 2010-2011
      • Stjórn Gígjunnar 2009-2010
      • Stjórn Gígjunnar 2008-2009
      • Stjórn Gígjunnar 2007-2008
      • Stjórn Gígjunnar 2006-2007
      • Stjórn Gígjunnar 2005-2006
      • Stjórn Gígjunnar 2004-2005
      • Stjórn Gígjunnar 2003-2004
  • Hafa samband
  • Fréttir
  • Forsíða
  • Hafa samband
  • Tónlistin
    • Útgáfa
    • Landsmót
    • Aðildakórar
    • Heiðursviðurkenningar
  • Um Gígjuna
    • Gígjan
    • Tónverkasjóður
    • Fundargerðir
    • Stofnfundur
    • Lög
    • Stjórn
  • 30074169_1661176133951423_1871409583_o

    Landssamband íslenskra Kvennakóra

  • Freyjukórinn
  • jorukorinn2017(1)
  • Kvennakór Reykjavíkur
  • Vortonleikar_2015_Gugga
  • Kvennakor Gardabaejar 1
  • Cantabile1

Jórukórinn heldur jólatónleika 3. desember í Hólmaröst á Stokkseyri

29. nóvember 2006
Sunnudaginn 3. desember kl. 20 halda Jórukórinn og Karlakór Selfoss sameiginlega jólatónleika í Menningarverstöðinni Hólmaröst á Stokkseyri. Kórarnir munu syngja hvor í sínu lagi og einnig nokkur lög sameiginlega. Á efnisskránni eru þekkt og sívinsæl jólalög. Stjórnandi Jórukórsins er Hlín Pétursdóttir og stjórnandi Karlakórs Selfoss er Loftur Erlingsson. Aðgangseyrir að tónleikunum er kr. 1500 og eru miðar seldir við innganginn. Aðgangur ókeypis fyrir börn. Á tónleikunum munu einnig koma fram strengjasveit frá Tónlistarskóla Árnessýslu undir stjórn Guðmundar Kristmundssonar og stúlknatríóið Perlurnar sem syngja nokkur jólalög. Sunnudaginn 10. desember mun Jórukórinn aftur koma fram á tónleikum á þá í Selfosskirkju þar sem haldnir verða sameiginlegir tónleikar allra kóra og hljómsveita á svæðinu.

Lesa meira

Freyjukórinn í Borgarfirði mun halda jólatónleika og skemmtun í Reykholtskirkju 8. desember

28. nóvember 2006
Föstudaginn 8. desember kl 20:00 verður Freyjukórinn ásamt ungu fólki úr Borgarfirði með jólatónleika og skemmtun í Reykholtskirkju. Stjórnandi tónleikanna er Zsuzsann Budai en fjöldi ungs fólks og ýmsir tónlistarmenn mun koma fram á þessum tónleikum með Freyjunum.Kátt er um jólin !
Freyjukórinn sem nú samanstendur af um 25 konum undir stjórn Zsuzsönnu Budai mun halda jólaskemmtunina - Kátt er um jólin. Fjöldi jólalaga verður á dagskrá, m.a. verður fluttur nýr íslenskur jólatexti „Eitt lítið jólatré“ eftir Ásdísi Ingimarsdóttur kennara í Grunnskólanum í Borgarnesi í útsetningu Gunnars Ringsted og nýlegur jólatexti „Vísa á jólakvöldi“ sem þýddur er af Bjarna Guðmundssyni á Hvanneyri. Undirleikari Freyjanna verður Ástríður Haraldsdóttir. Fjöldi ungs fólks mun auk þess spila og syngja með Freyjunum. Þar má nefna systurnar Ástu og Unni Þorsteinsdætur frá Fróðastöðum, Önnu Sólrúnu Kolbeinsdóttur frá Stóra Ási, Daníel Einarsson frá Borgarnesi, Aðalheiði Karlottu Guðlaugsdóttur frá Hvanneyri og Þorgerði Ólafsdóttur frá Sámsstöðum. Fluttar verða örsögur og verður bryddað uppá fjölbreyttum undirleik þar sem fiðlur, trommur og ekki síst steinharpa Páls á Húsafelli fær að óma. Unnur Halldórsdóttir hótelrekandi og hagyrðingur mun sjá um að kynna dagskráliði og skreyta dagskrána að eigin hætti.
Lesa meira

Aðventutónleikar Gospelsystra Reykjavíkur, Vox feminae og Stúlknakórs Reykjavíkur verða haldnir í Ha

28. nóvember 2006
“Tendrum ljós á tré” er yfirskrift glæsilegra aðventutónleika sönghússins Domus Vox sem haldnir verða í Hallgrímskirkju 12. og 13. desember. Á tónleikunum koma fram undir stjórn Margrétar J. Pálmadóttur rúmlega 200 söngkonur á öllum aldri ásamt einsöngvara og hljóðfæraleikurum. Kórarnir sem taka þátt í þessum tónleikum eru: Vox feminae, Vox junior, Stúlknakór Reykjavíkur og Gospelsystur Reykjavíkur. Einsöngvari tónleikanna er sópransöngkonan Hanna Björk Guðjónsdóttir. Báðir tónleikarnir hefjast kl. 20.00. Forsala aðgöngumiða er hjá kórfélögum og í sönghúsinu Domus Vox, Laugavegi 116, mánudaga til fimmtudaga kl. 14-18. Hægt er að kaupa miða í gegnum síma 511 3737 og 893 8060. Miðaverð er kr. 2500 (kr. 2000 í forsölu).

Lesa meira

Aðventutónleikar Kvennakórs Garðabæjar verða í Digraneskirkju 9. desember

27. nóvember 2006
Hinir árlegu aðventutónleikar Kvennakórs Garðabæjar verða haldnir laugardaginn 9. desember kl. 17.00 í Digraneskirkju, einni hljómfegurstu kirkju landsins. Að vanda verður efnisskráin metnaðarfull og hátíðleg en sungin verða mörg þekkt jólalög sem ættu að koma tónleikagestum í sannkallaða jólastemmningu. Sérstakur gestur kórsins að þessu sinni er hinn nýstofnaði Stúlknakór Garðabæjar sem Bára Grímsdóttir stjórnar. Einnig munu hljóðfæraleikarar auka á hátíðleikann. Stjórnandi Kvennakórs Garðabæjar er Ingibjörg Guðjónsdóttir, sópransöngkona og píanóleikari er Kristinn Örn Kristinsson. Aðgangseyrir er 2000 kr. en 1700 kr. í forsölu og fyrir lífeyrisþega. Frítt er fyrir 12 ára og yngri. Forsala aðgöngumiða fer fram í Bókabúðinni Grímu, Garðatorgi og hjá kórkonum. Sjá nánari upplýsingar um kórinn á heimasíðu hans www.kvennakor.is.

Hinir árlegu aðventutónleikar Kvennakórs Garðabæjar verða haldnir laugardaginn 9. desember kl. 17.00 í Digraneskirkju, einni hljómfegurstu kirkju landsins. Að vanda verður efnisskráin metnaðarfull og hátíðleg en sungin verða mörg þekkt jólalög sem ættu að koma tónleikagestum í sannkallaða jólastemmningu. Sérstakur gestur kórsins að þessu sinni er hinn nýstofnaði Stúlknakór Garðabæjar sem Bára Grímsdóttir stjórnar. Einnig munu hljóðfæraleikarar auka á hátíðleikann. Stjórnandi Kvennakórs Garðabæjar er Ingibjörg Guðjónsdóttir, sópransöngkona og píanóleikari er Kristinn Örn Kristinsson. Aðgangseyrir er 2000 kr. en 1700 kr. í forsölu og fyrir lífeyrisþega. Frítt er fyrir 12 ára og yngri. Forsala aðgöngumiða fer fram í Bókabúðinni Grímu, Garðatorgi og hjá kórkonum. Sjá nánari upplýsingar um kórinn á heimasíðu hans www.kvennakor.is.

Lesa meira
  • Fyrri
    • 1
    • ..
    • 158
    • 159
    • 160
    • 161
    • 162
    • 163
    • 164
    • 165
    • 166
    • 167
    • 168
    • ..
    • 189
  • Næsta

Eldri fréttir

  • Landsmót Gígjunnar haldið í maí 2023
    31. ágúst 2022
  • Landsmóti frestað til 2023
    25. janúar 2021
  • Verklagsreglur um æfingafyrirkomulag á tímum samkomutakmarkana fyrir kvennakóra innan Gígjunnar
    10. september 2020
  • Landsmót Gígjunnar haldið 16-18 sept 2021
    11. júní 2020
  • Landsmóti Gígjunnar frestað
    14. mars 2020
  • Þorravaka Kvennakórs Garðabæjar
    11. febrúar 2020
  • Jólakveðja
    25. desember 2019
  • Jólatónleikar Kvennakórs Hafnarfjarðar
    20. nóvember 2019
  • Aðventutónleikar Kvennakórs Garðabæjar
    19. nóvember 2019
  • Jólatónleikar Kvennakórs Kópavogs
    18. nóvember 2019
  • Jólatónleikar Léttsveitarinnar
    13. nóvember 2019
  • Kvenna megin
    1. nóvember 2019
  • Aðalfundur Gígjunnar 2019
    28. október 2019
  • Mæðradagstónleikar Kvennakórs Akureyrar
    8. maí 2019
  • Dívur – vortónleikar Kvennakórs Suðurnesja
    3. maí 2019
  • Vortónleikar Kvennakórs Kópavogs
    29. apríl 2019

Gígjan, landssamband íslenskra kvennakóra

  • Kleppsvegur 132, 104 Reykjavík
  • gigjan2003@gmail.com
  • 847 1724
  • 690403 3660
© 2025 Gígjan, landssamband íslenskra kvennakóra