• Fréttir
  • Tónlistin
    • Útgáfa
      • Freyjukórinn
      • Kvk Akureyrar
      • Kvennakór Suðurnesja
      • Norðurljós
      • Kvk Kaupmannahöfn
      • Léttsveit Rvíkur
      • Kvk Ljósbrá
      • Gospelsystur
      • Seljur
      • Lillukórinn
      • Ymur
      • Kvk Garðabæjar
      • Kvk Hafnarfjarðar
      • Jórukórinn
      • Kvk Reykjavíkur
      • Vox Feminae
    • Landsmót
      • Árið 2020 - Reykjavík
      • Árið 2017 - Ísafjörður
      • Árið 2014 - Akureyri
      • Árið 2011 - Selfoss
      • Árið 2008 - Hornafjörður
      • Árið 2005 - Hafnarfjörður
      • Árið 2002 - Reykjanesbær
      • Árið 1999 - Siglufjörður
      • Árið 1997 - Reykholt í Borgarfirði
      • Árið 1995 - Reykjavík
      • Árið 1992 - Ýdölum
    • Aðildakórar
      • Fyrrverandi aðildarkórar
    • Heiðursviðurkenningar
      • Hrönn Hjaltadóttir
      • Sigurbjörg Aðalsteinsdóttir
      • Aðalheiður Ósk Gunnarsdóttir
      • Gróa María Þorvaldsdóttir
      • Sigríður Anna Ellerup
      • Guðrún Ósk Sæmundsdóttir
      • Heiða Gunnarsdóttir
      • Margrét Pálmadóttir
      • Margrét Bóasdóttir
  • Um Gígjuna
    • Gígjan
    • Tónverkasjóður
    • Fundargerðir
    • Stofnfundur
    • Lög
    • Stjórn
      • Stjórn Gígjunnar 2018-2019
      • Stjórn Gígjunnar 2017-2018
      • Stjórn Gígjunnar 2016-2017
      • Stjórn Gígjunnar 2015-2016
      • Stjórn Gígjunnar 2014-2015
      • Stjórn Gígjunnar 2013-2014
      • Stjórn Gígjunnar 2012-2013
      • Stjórn Gígjunnar 2011-2012
      • Stjórn Gígjunnar 2010-2011
      • Stjórn Gígjunnar 2009-2010
      • Stjórn Gígjunnar 2008-2009
      • Stjórn Gígjunnar 2007-2008
      • Stjórn Gígjunnar 2006-2007
      • Stjórn Gígjunnar 2005-2006
      • Stjórn Gígjunnar 2004-2005
      • Stjórn Gígjunnar 2003-2004
  • Hafa samband
  • Fréttir
  • Forsíða
  • Hafa samband
  • Tónlistin
    • Útgáfa
    • Landsmót
    • Aðildakórar
    • Heiðursviðurkenningar
  • Um Gígjuna
    • Gígjan
    • Tónverkasjóður
    • Fundargerðir
    • Stofnfundur
    • Lög
    • Stjórn
  • 30074169_1661176133951423_1871409583_o

    Landssamband íslenskra Kvennakóra

  • Freyjukórinn
  • jorukorinn2017(1)
  • Kvennakór Reykjavíkur
  • Vortonleikar_2015_Gugga
  • Kvennakor Gardabaejar 1
  • Cantabile1

Jórukórinn heldur tónleika í Þingborg og Hveragerðiskirkju

19. mars 2015

Nú líður að árlegum vortónleikum Jórukórsins og eru þeir aðeins fyrr á ferðinni nú en áður. Eins og undanfarin ár verður boðið upp á tvenna tónleika. Fyrri tónleikarnir verða í Þingborg með tilheyrandi kaffihúsastemmningu, kaffi og konfekti, sunnudaginn 22. mars kl. 20.00 og þeir seinni í Hveragerðiskirkju miðvikudaginn 25. mars kl. 20.00. 

Lagavalið er mjög fjölbreytt, létt og skemmtilegt. Vinsæl íslensk og erlend dægurlög sem Stefán Þorleifsson hefur raddsett fyrir kórinn eru í aðalhlutverki. Tónleikagestir á öllum aldri ættu að finna þarna eitthvað við sitt hæfi.

Hljóðfæraleikarar með kórnum verða Sveinn Pálsson á gítar, Róbert Dan Bergmundsson á bassa og Stefán Ingimar Þórhallsson á trommur að ógleymdum stjórnandanum Stefáni Þorleifssyni á píanó/hljómborð, en þeir félagar mynda kjarnann í Djassbandi Suðurlands. 

Tæplega 50 konur hafa æft saman í vetur undir stjórn Stefáns, sem nú er að ljúka sínu þriðja starfsári með kórnum og hlakka kórkonur mikið til að njóta afrakstursins með tónleikagestum. Þær ætla með þessu að gera sitt til að syngja inn vorið eftir þennan mikla og stormasama vetur. Jórur kunna öllum þeim sem styrkt hafa starfsemi kórsins bestu þakkir, ekki síst ykkur kæru tónleikagestir.

Lesa meira

Kvennakórinn Sóldís heldur suður yfir heiðar

18. mars 2015

Kvennakórinn Sóldís ætlar suður yfir heiðar um helgina og heldur tvenna tónleika laugardaginn 21. mars; í Guðríðarkirkju í Grafarvogi kl. 14:00 og í Víðistaðakirkju, Hafnarfirði kl. 17:00.

Söngstjóri er Sólveig S. Einarsdóttir, undirleikarar eru Rögnvaldur Valbergsson, Jón Helgi Þórarinsson og Gunnar Sigfús Björnsson.  Tveir einsöngvarar stíga á stokk, Sigríður Margrét Ingimarsdóttir og Íris Olga Lúðvíksdóttir. 

Á söngskránni er býsna fjölbreytt úrval laga, allt frá hefðbundnum íslenskum sönglögum til óhefðbundinna dægurlaga.

Aðgangseyrir er 3000 kr.

Lesa meira

Vivaldi tónleikar í Fella- og Hólakirkju

18. mars 2015

Laugardaginn 21. mars næstkomandi halda Kammersveitin ReykjavíkBarokk og þrír kvennakórar sem starfa undir stjórn Margrétar Pálmadóttur tónleika i Fella- og Hólakirkju sem bera yfirskriftina Nisi Dominus og Gloria. Tónleikarnir eru lokapunktur ánægjulegs samstarfs þessara tveggja hópa sem staðið hefur í vetur.

Á tónleikunum verða flutt tvö verk eftir ítalska tónskáldið Antonio Vivaldi. Fyrra verkið, Nisi Dominus, er í flutningi kammerhópsins ReykjavíkBarokk og altsöngkonunnar Jóhönnu Halldórsdóttur. 

ReykjavíkBarokk er hópur hljóðfæraleikara sem deilir því sameiginlega áhugamáli að leika á upprunaleg hljóðfæri. Hópurinn var stofnaður haustið 2012 og hefur komið víða fram.

Kvennakórarnir Aurora, Cantabile og Vox feminae flytja svo síðara verkið, Gloriu, ásamt ReykjavíkBarokk. Verkið er eitt vinsælasta kórverk allra tíma og  var upprunalega samið fyrir blandaðan kór en verður hér flutt í útsetningu fyrir kvennakór. Tíu kórfélagar munu syngja einsöng með kórnum. Í kvennakórunum eru um 100 konur frá 18 ára aldri, svo það verður fjölmennur hópur sem flytur þetta einstaklega fallega verk Vivaldis.

Tónleikarnir í Fella- og Hólakirkju hefjast kl. 20:30.  Miðaverð er 3.000 krónur og miðasala er hjá kórfélögum og í síma 511 3737 / 893 8060.

Lesa meira

Heklurnar í syngjandi sveiflu

12. mars 2015
Næstkomandi laugardag heldur kvennakórinn Heklurnar sína árlegu vortónleika í Laugarneskirkju kl. 16.  Á efnisskrá þessara tónleika er að finna bæði innlenda og erlenda tónlist. Þemað er stríðsáratónlist með blöndu af gömlum og nýjum dægurflugum, tónlist úr óperum og óperettum og nokkur þjóðlög svo eitthvað sé nefnt.

Aðrir flytjendur eru Lilja Eggertsdóttir, stjórnandi og píanóleikari, Guðbjörg Hlín Guðmundsdóttir, fiðluleikari og Þorgrímur Jónsson, kontrabassaleikari.

Aðgangseyrir: 2000 kr. við innganginn og í forsölu.

Forsala aðgöngumiða er hjá kórkonum (heklurnar@gmail.com). 
Frítt fyrir börn yngri en 16 ára.
Ath. ekki er tekið við greiðslukortum.   Sjáumst í syngjandi sveiflu!
Lesa meira
  • Fyrri
    • 1
    • ..
    • 24
    • 25
    • 26
    • 27
    • 28
    • 29
    • 30
    • 31
    • 32
    • 33
    • 34
    • ..
    • 189
  • Næsta

Eldri fréttir

  • Landsmót Gígjunnar haldið í maí 2023
    31. ágúst 2022
  • Landsmóti frestað til 2023
    25. janúar 2021
  • Verklagsreglur um æfingafyrirkomulag á tímum samkomutakmarkana fyrir kvennakóra innan Gígjunnar
    10. september 2020
  • Landsmót Gígjunnar haldið 16-18 sept 2021
    11. júní 2020
  • Landsmóti Gígjunnar frestað
    14. mars 2020
  • Þorravaka Kvennakórs Garðabæjar
    11. febrúar 2020
  • Jólakveðja
    25. desember 2019
  • Jólatónleikar Kvennakórs Hafnarfjarðar
    20. nóvember 2019
  • Aðventutónleikar Kvennakórs Garðabæjar
    19. nóvember 2019
  • Jólatónleikar Kvennakórs Kópavogs
    18. nóvember 2019
  • Jólatónleikar Léttsveitarinnar
    13. nóvember 2019
  • Kvenna megin
    1. nóvember 2019
  • Aðalfundur Gígjunnar 2019
    28. október 2019
  • Mæðradagstónleikar Kvennakórs Akureyrar
    8. maí 2019
  • Dívur – vortónleikar Kvennakórs Suðurnesja
    3. maí 2019
  • Vortónleikar Kvennakórs Kópavogs
    29. apríl 2019

Gígjan, landssamband íslenskra kvennakóra

  • Kleppsvegur 132, 104 Reykjavík
  • gigjan2003@gmail.com
  • 847 1724
  • 690403 3660
© 2025 Gígjan, landssamband íslenskra kvennakóra