• Fréttir
  • Tónlistin
    • Útgáfa
      • Freyjukórinn
      • Kvk Akureyrar
      • Kvennakór Suðurnesja
      • Norðurljós
      • Kvk Kaupmannahöfn
      • Léttsveit Rvíkur
      • Kvk Ljósbrá
      • Gospelsystur
      • Seljur
      • Lillukórinn
      • Ymur
      • Kvk Garðabæjar
      • Kvk Hafnarfjarðar
      • Jórukórinn
      • Kvk Reykjavíkur
      • Vox Feminae
    • Landsmót
      • Árið 2020 - Reykjavík
      • Árið 2017 - Ísafjörður
      • Árið 2014 - Akureyri
      • Árið 2011 - Selfoss
      • Árið 2008 - Hornafjörður
      • Árið 2005 - Hafnarfjörður
      • Árið 2002 - Reykjanesbær
      • Árið 1999 - Siglufjörður
      • Árið 1997 - Reykholt í Borgarfirði
      • Árið 1995 - Reykjavík
      • Árið 1992 - Ýdölum
    • Aðildakórar
      • Fyrrverandi aðildarkórar
    • Heiðursviðurkenningar
      • Hrönn Hjaltadóttir
      • Sigurbjörg Aðalsteinsdóttir
      • Aðalheiður Ósk Gunnarsdóttir
      • Gróa María Þorvaldsdóttir
      • Sigríður Anna Ellerup
      • Guðrún Ósk Sæmundsdóttir
      • Heiða Gunnarsdóttir
      • Margrét Pálmadóttir
      • Margrét Bóasdóttir
  • Um Gígjuna
    • Gígjan
    • Tónverkasjóður
    • Fundargerðir
    • Stofnfundur
    • Lög
    • Stjórn
      • Stjórn Gígjunnar 2018-2019
      • Stjórn Gígjunnar 2017-2018
      • Stjórn Gígjunnar 2016-2017
      • Stjórn Gígjunnar 2015-2016
      • Stjórn Gígjunnar 2014-2015
      • Stjórn Gígjunnar 2013-2014
      • Stjórn Gígjunnar 2012-2013
      • Stjórn Gígjunnar 2011-2012
      • Stjórn Gígjunnar 2010-2011
      • Stjórn Gígjunnar 2009-2010
      • Stjórn Gígjunnar 2008-2009
      • Stjórn Gígjunnar 2007-2008
      • Stjórn Gígjunnar 2006-2007
      • Stjórn Gígjunnar 2005-2006
      • Stjórn Gígjunnar 2004-2005
      • Stjórn Gígjunnar 2003-2004
  • Hafa samband
  • Fréttir
  • Forsíða
  • Hafa samband
  • Tónlistin
    • Útgáfa
    • Landsmót
    • Aðildakórar
    • Heiðursviðurkenningar
  • Um Gígjuna
    • Gígjan
    • Tónverkasjóður
    • Fundargerðir
    • Stofnfundur
    • Lög
    • Stjórn
  • 30074169_1661176133951423_1871409583_o

    Landssamband íslenskra Kvennakóra

  • Freyjukórinn
  • jorukorinn2017(1)
  • Kvennakór Reykjavíkur
  • Vortonleikar_2015_Gugga
  • Kvennakor Gardabaejar 1
  • Cantabile1

Sveinki sjarmur - jólatónleikar Léttsveitar Reykjavíkur

27. nóvember 2014

Léttsveit Reykjavíkur heldur tvenna jólatónleika í Langholtskirkju laugardaginn 6. desember kl. 14 og 17 undir styrkri stjórn Gísla Magna.

Dagskrá tónleikanna verður hátíðleg, hugljúf og skemmtileg.

Gestasöngvari verður Anna Sigríður Helgadóttir.

Hljómsveitina skipa Aðalheiður Þorsteinsdóttir píanóleikari, Tómas R. Einarsson á kontrabassa og Kjartan Guðnason á trommur.

Miðaverð er kr. 3.500 og fer miðasala fram hjá kórkonum og í síma 897-1885.

Léttsveit Reykjavíkur er stærsti kvennakór landsins með 120 konur og heldur nú upp á 20. starfsárið í vetur.

Lesa meira

Gleðileg jól! Jólatónleikar Kvennakórs Hafnarfjarðar

19. nóvember 2014

Senn líður að jólatónleikum Kvennakórs Hafnarfjarðar sem bera einfaldlega yfirskriftina Gleðileg jól! Karlakórinn Þrestir mun syngja með kórnum á þessum tónleikum sem haldnir verða í Víðistaðakirkju í Hafnarfirði 4. desember n.k. og hefjast kl. 20:00.

Á dagskrá tónleikanna verða jólasálmar og jólalög úr ýmsum áttum. Kórarnir munu syngja saman og hvor fyrir sig og má búast við hátíðarhljóm og hugljúfri jólastemmningu. Það er tilhlökkunarefni að fá Þrestina sem gesti á þessa tónleika Kvennakórs Hafnarfjarðar sem nú er að ljúka sínu nítjánda starfsári. Undirbúningur er þegar hafinn fyrir komandi ár þegar kórinn fagnar tuttugu ára afmæli sínu. Verður þá væntanlega mikið við haft og verða fluttar nánari fregnir af viðburðum afmælisársins er nær dregur.

Stjórnandi Kvennakórs Hafnarfjarðar er Erna Guðmundsdóttir, Antonía Hevesi leikur á píanó og flautuleikari er Kristrún Helga Björnsdóttir. Stjórnandi Karlakórsins Þrasta er Jón Kristinn Cortez.

Lista- og hannyrðakonan Arndís Sigurbjörnsdóttir mun skreyta Víðistaðakirkju í tilefni af tónleikunum.

Miðaverð er 2500 krónur og fer miðasala fram hjá kórkonum og við innganginn. Frítt er fyrir börn 12 ára og yngri. Gestum verður boðið að þiggja kaffi og konfekt í tónleikahléi.

Lesa meira

Líður að helgum tíðum

18. nóvember 2014
Aðventutónleikar kóra Margrétar Pálmadóttur í Hallgrímskirkju miðvikudaginn 3. desember kl. 20:30.   Kvennakórarnir Vox feminae og Cantabile ásamt elstu stúlkum Stúlknakórs Reykjavíkur halda sameiginlega aðventutónleika í Hallgrímskirkju miðvikudaginn 3. desember næstkomandi.   Tónleikarnir eru helgaðir trúarlegri tónlist frá ýmsum tímum tileinkaðri aðventu og jólum. Kórfélagar eru alls um 120 talsins og flytja öll verkin a capella eða án undirleiks, í minni hópum eða allar saman.   Efnisskrá tónleikanna ber merki liðinna alda í Mið-Evrópu þar sem samhljómur raddanna naut sín til fulls í endurómi hljómmikilla kirkna.   Margrét Pálmadóttir er stofnandi og stjórnandi kóranna þriggja og hafa þeir allir ferðast með henni bæði innan lands og utan.   Það verður hátíðleg stemming í Hallgrímskirkju á þessum tónleikum og því er tilvalið að koma og hlýða á gömul jólalög við kertaljós í hinum undurfagra hljómi og notalega umhverfi Hallgrímskirkju.   Tónleikarnir hefjast kl. 20:30. Miðasala er í Domus vox í síma 511 3737, hjá kórfélögum og á midi.is.
Lesa meira

Aðalfundur og heiðursviðurkenning Gígjunnar 2014

17. nóvember 2014

Aðalfundur Gígjunnar var haldinn 18. október. Á fundinum var kjörin stjórn næsta starfsárs en fjórar af fimm konum í aðalstjórn Gígjunnar gáfu kost á sér áfram. Steiney Halldórsdóttir úr Kvennakór Hafnarfjarðar gaf ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu. Steiney á að baki fimm ár í aðalstjórn og eitt ár í varastjórn, en það er lengsta stjórnarseta þeirra kvenna sem setið hafa í stjórn Gígjunnar og eru henni þökkuð góð störf. Stjórn Gígjunnar starfsárið 2014 - 2015 er skipuð þeim Þórhildi Kristjánsdóttur formanni, Kvennakór Hornafjarðar, Dagbjörtu Láru Ottósdóttur úr Kvennakórnum Léttsveit Reykjavíkur, Guðlaugu Ásgeirsdóttur úr Heklunum, Ragnheiði Helgadóttur úr Kvennakór Hafnarfjarðar og Önnu Lilju Ottósdóttur úr Kvennakór Hornafjarðar. Í varastjórn eru Anna Breiðfjörð Sigurðardóttir úr Kvennakór Akureyrar, Kolbrún Halldórsdóttir úr Kvennakór Reykjavíkur og Una Þórey Sigurðardóttir úr Kvennakór Akureyrar.

Að loknum venjulegum aðalfundarstörfum hélt Pernilla Rein frá Kvennakór Ísafjarðar stutta kynningu á landsmóti íslenskra kvennakóra sem verður haldið á Ísafirði 2017. Stofnuð hefur verið landsmótssíða fyrir landsmótið 2017 á vefsetri Gígjunnar og munu fréttir birtast af undirbúningi mótsins á síðunni. Í máli Pernillu kom fram að mótið verður haldið aðra helgina í maí 2017 en í skoðun er að hefja mótið jafnvel á fimmtudegi og ljúka því á laugardagskvöldi svo konur hafi allan sunnudaginn fyrir heimferð þar sem um langa leið er að fara fyrir marga kóra. Pernilla sagði einnig frá því að þegar hafi verið rætt við ungt tónskáld frá Ísafirði, Halldór Smárason, um að semja landsmótslagið. Að því loknu kynnti Margrét Pálmadóttir óvænt atriði en þar var Halldór mættur ásamt Matthildi Guðrúnu Hafliðadóttur og fluttu þau eitt lag saman. Þess má geta að Pernilla vissi ekki af því að Halldór væri á staðnum, þannig að þetta var skemmtileg tilviljun.

Undanfarin ár hefur hefur stjórn Gígjunnar afhent viðurkenningu til kvennakórskonu sem hefur unnið gott starf og er mikilvæg fyrir kórinn sinn. Hugmyndin með þessu er að vekja athygli á því hversu gott og fórnfúst starf margar kórkónur vinna í sínum kórum. Án þessara kvenna væri starf kvennakóra ekki mögulegt. Þetta eru sannkallaðar hvunndagshetjur. Þær konur sem hafa hlotið heiðursviðurkenningu Gígjunnar eru Hrönn Hjaltadóttir úr Kvennakór Reykjavíkur árið 2010, Sigurbjörg Aðalsteinsdóttir úr Vox feminae árið 2011, Aðalheiður Ósk Gunnarsdóttir úr Kvennakór Suðurnesja árið 2012 og Gróa María Þorvaldsdóttir úr Kvennakór Kópavogs árið 2013. 

Á landsmóti íslenskra kvennakóra á Selfossi árið 2011 voru auk þess afhentar viðurkenningar til þriggja kvenna sem unnið hafa ómetanlegt starf fyrir Gígjuna og aðildarkóra sambandsins, en það voru þær Margrét Bóasdóttir kórstjóri, Margrét Pálmadóttir kórstjóri og Heiða Gunnarsdóttir, þá í Vox feminae en nú í Kvennakór Garðabæjar.

Heiðursviðurkenningu Gígjunnar 2014 hlaut Sigríður Anna Ellerup úr Vox feminae. Í umsögn kórsins um Sigríði Önnu segir m.a.: Anna Sigga hefur ávallt sýnt mjög mikinn metnað fyrir hönd starfs kvennakóra á Íslandi og hefur alltaf viljað veg þess sem mestan. Félagar í Vox feminae og öðrum kvenna- og stúlknakórum eiga henni mikið að þakka vegna hennar óeigingjarna starfs. Verkefni kórsins hafa ávallt verið í forgangi hjá henni og hún hefur verið öðrum kórfélögum bæði hvatning og fyrirmynd hvað varðar ástundun, þátttöku í uppbyggingu innra starfs með þátttöku í óteljandi nefndum og uppbyggingu á ímynd kórsins út á við. 

Í lok aðalfundar hélt Sigríður Hulda Jónsdóttir stutt en áhugavert námskeið undir yfirskriftinni "Efling gleðinnar" en námskeiðið byggir á rannsóknum innan jákvæðrar sálfræði og tengingu við hugræna atferlismótun. Daglegar hugsanir okkar og venjur stýra miklu um viðhorf okkar og hvernig okkur tekst að takast á við verkefni daglegs lífs. Á námskeiðinu var farið yfir þá grunnþætti sem efla jákvæðni og vellíðan og gera okkur kleift að takast á við áskoranir og njóta daglegs lífs.

Lesa meira
  • Fyrri
    • 1
    • ..
    • 28
    • 29
    • 30
    • 31
    • 32
    • 33
    • 34
    • 35
    • 36
    • 37
    • 38
    • ..
    • 189
  • Næsta

Eldri fréttir

  • Landsmót Gígjunnar haldið í maí 2023
    31. ágúst 2022
  • Landsmóti frestað til 2023
    25. janúar 2021
  • Verklagsreglur um æfingafyrirkomulag á tímum samkomutakmarkana fyrir kvennakóra innan Gígjunnar
    10. september 2020
  • Landsmót Gígjunnar haldið 16-18 sept 2021
    11. júní 2020
  • Landsmóti Gígjunnar frestað
    14. mars 2020
  • Þorravaka Kvennakórs Garðabæjar
    11. febrúar 2020
  • Jólakveðja
    25. desember 2019
  • Jólatónleikar Kvennakórs Hafnarfjarðar
    20. nóvember 2019
  • Aðventutónleikar Kvennakórs Garðabæjar
    19. nóvember 2019
  • Jólatónleikar Kvennakórs Kópavogs
    18. nóvember 2019
  • Jólatónleikar Léttsveitarinnar
    13. nóvember 2019
  • Kvenna megin
    1. nóvember 2019
  • Aðalfundur Gígjunnar 2019
    28. október 2019
  • Mæðradagstónleikar Kvennakórs Akureyrar
    8. maí 2019
  • Dívur – vortónleikar Kvennakórs Suðurnesja
    3. maí 2019
  • Vortónleikar Kvennakórs Kópavogs
    29. apríl 2019

Gígjan, landssamband íslenskra kvennakóra

  • Kleppsvegur 132, 104 Reykjavík
  • gigjan2003@gmail.com
  • 847 1724
  • 690403 3660
© 2025 Gígjan, landssamband íslenskra kvennakóra