• Fréttir
  • Tónlistin
    • Útgáfa
      • Freyjukórinn
      • Kvk Akureyrar
      • Kvennakór Suðurnesja
      • Norðurljós
      • Kvk Kaupmannahöfn
      • Léttsveit Rvíkur
      • Kvk Ljósbrá
      • Gospelsystur
      • Seljur
      • Lillukórinn
      • Ymur
      • Kvk Garðabæjar
      • Kvk Hafnarfjarðar
      • Jórukórinn
      • Kvk Reykjavíkur
      • Vox Feminae
    • Landsmót
      • Árið 2020 - Reykjavík
      • Árið 2017 - Ísafjörður
      • Árið 2014 - Akureyri
      • Árið 2011 - Selfoss
      • Árið 2008 - Hornafjörður
      • Árið 2005 - Hafnarfjörður
      • Árið 2002 - Reykjanesbær
      • Árið 1999 - Siglufjörður
      • Árið 1997 - Reykholt í Borgarfirði
      • Árið 1995 - Reykjavík
      • Árið 1992 - Ýdölum
    • Aðildakórar
      • Fyrrverandi aðildarkórar
    • Heiðursviðurkenningar
      • Hrönn Hjaltadóttir
      • Sigurbjörg Aðalsteinsdóttir
      • Aðalheiður Ósk Gunnarsdóttir
      • Gróa María Þorvaldsdóttir
      • Sigríður Anna Ellerup
      • Guðrún Ósk Sæmundsdóttir
      • Heiða Gunnarsdóttir
      • Margrét Pálmadóttir
      • Margrét Bóasdóttir
  • Um Gígjuna
    • Gígjan
    • Tónverkasjóður
    • Fundargerðir
    • Stofnfundur
    • Lög
    • Stjórn
      • Stjórn Gígjunnar 2018-2019
      • Stjórn Gígjunnar 2017-2018
      • Stjórn Gígjunnar 2016-2017
      • Stjórn Gígjunnar 2015-2016
      • Stjórn Gígjunnar 2014-2015
      • Stjórn Gígjunnar 2013-2014
      • Stjórn Gígjunnar 2012-2013
      • Stjórn Gígjunnar 2011-2012
      • Stjórn Gígjunnar 2010-2011
      • Stjórn Gígjunnar 2009-2010
      • Stjórn Gígjunnar 2008-2009
      • Stjórn Gígjunnar 2007-2008
      • Stjórn Gígjunnar 2006-2007
      • Stjórn Gígjunnar 2005-2006
      • Stjórn Gígjunnar 2004-2005
      • Stjórn Gígjunnar 2003-2004
  • Hafa samband
  • Fréttir
  • Forsíða
  • Hafa samband
  • Tónlistin
    • Útgáfa
    • Landsmót
    • Aðildakórar
    • Heiðursviðurkenningar
  • Um Gígjuna
    • Gígjan
    • Tónverkasjóður
    • Fundargerðir
    • Stofnfundur
    • Lög
    • Stjórn
  • 30074169_1661176133951423_1871409583_o

    Landssamband íslenskra Kvennakóra

  • Freyjukórinn
  • jorukorinn2017(1)
  • Kvennakór Reykjavíkur
  • Vortonleikar_2015_Gugga
  • Kvennakor Gardabaejar 1
  • Cantabile1

Menning í tali og tónum á Góugleði Kvennakórs Garðabæjar

10. mars 2014


Hinn árvissi menningarviðburður kórsins; Góugleði, fór fram fimmtudagskvköldið 6. mars í sal Tónlistarskóla Garðabæjar.

Kórinn söng nokkur lög undir stjórn Ingibjargar Guðjónsdóttur kórstjóra við undirleik Sólveigar Önnu Jónsdóttur og síðan tvö lög með Ingibjörgu þar sem hún söng einsöng. Að venju var boðið upp á fjölbreytta dagskrá og kvöldið allt hið ánægjulegasta.

Bæjarlistamaður Garðabæjar uppskar húrrahróp
Eins og flestum er kunnugt, er Ingibjörg Guðjónsdóttir sópransöngkona og kórstjóri Kvennakórs Garðabæjar listamaður Garðabæjar ársins 2013. Það er einnig fastur liður á Góugleði, að bæjarlistamaður komi fram og flytji sína list. Söng Ingibjörg nokkur lög við undirleik Sólveigar Önnu. Að flutningi loknum risu áheyrendur úr sætum með húrrahrópum og tók hún við gjöf frá kórfélögum í tilefni tilnefningarinnar og framlags hennar til lista og menningar.

Nemendur úr rytmiskri deild Tónlistarskóla Garðabæjar spiluðu af fingrum fram
Hljómsveitin Roland bræður, skipuð þeim Sindra Thorlacius, Aroni Magnússyni, Helga Þorleikssyni og Sindra Magnússyni lék af innlifun fyrir tónleikagesti og var þeim vel fagnað. Það er fastur liður á Góugleði, að fram komi nemendur úr tónlistarskólanum og er það alltaf einstaklega gefandi að hlýða á unga fólkið flytja sína tónlist.

Ræðumaður kvöldsins lagði út frá lífsgleði
Ræðumaður að þessu sinni var Áslaug Hulda Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Hjallastefnunnar og forseti bæjarstjórnar Garðabæjar. Flutti hún líflega og innihaldsríka ræðu um mestu gleðivaka lífsins, hlátur og söng. Ræðumaður fékk góðar undirtektir og vakti kátínu meðal viðstaddra.

Kynnir kvöldsins úr blokkinni
Leikkonan Katla Margrét Þorgeirsdóttir sem lék m.a. í þáttunum Fólkið í blokkinni var kynnir kvöldsins. Katla hefur áður unnið með kórnum og átti hún í fórum sínum gamansamar lýsingar af samstarfinu og náði vel til áheyrenda.

Vetrarveður á Góu
Það var auðfundið að vetur konungur hélt mörgum áhangendum Kvennakórs Garðabæjar í heljargreipum heima þetta kvöld, en við þökkum þeim sem komu fyrir ánægjulega samverustund. Einnig fá allir þeir sem lögðu hönd á plóg með sínu framlagi, hjartans þakkir fyrir.

Fleiri myndir
Hægt er að skoða fleiri myndir frá Góugleði Kvennakórs Garðabæjar á facebook síðu kórsins.

Lesa meira

Góugleði Kvennakórs Garðabæjar

3. mars 2014

Góugleði Kvennakórs Garðabæjar verður haldinn fimmtudaginn 6. mars kl. 20 í sal Tónlistarskóla Garðabæjar.

Við munum fá til liðs við okkur frábæra listamenn eins og til dæmis bæjarlistamann Garðabæjar hana Ingibjörgu Guðjónsdóttur stjórnandann okkar sem við erum afar stoltar af.

Boðið verður upp á kaffi og léttar veitingar.

Miðar seldir við innganginn kr. 2000.-

Verið hjartanlega velkomin.

Kvennakór Garðabæjar

Lesa meira

Fréttir af undirbúningi landsmóts

18. febrúar 2014

Kvennakórskonur á Akureyri hafa í nógu að snúast þessa dagana við undirbúning landsmótsins. Þær hafa fengið Kvennakórinn Sölku á Dalvík til liðs við sig við undirbúninginn og hlakka þær allar mikið til að taka á móti landsmótsgestum í vor.

Rúmlega 700 konur hafa skráð sig á landsmótið og eru mótshaldarar hæstánægðar með þessa frábæru þátttöku. Tuttugu kórar víðsvegar að af landinu hafa skráð sig á mótið og einn gestakór frá Noregi, Vox Humana.

Á vef Kvennakórs Akureyrar www.kvak.is er að finna ýmsar upplýsingar um kvennakórinn og landsmótið og verður vefsíðan uppfærð með nýjum upplýsingum alveg fram að landsmóti. Samfélagsmiðillinn facebook er að sjálfsögðu einnig notaður og þar er hægt að finna upplýsingar um landsmótið á https://www.facebook.com/landsmot2014. 

Dagskrá mótsins er ennþá í mótun en drög að henni er að finna á vefsíðu www.kvak.is en þar eru einnig upplýsingar um fjölda þátttökukóra, upplýsingar um söngsmiðjurnar, uppröðun kóra í söngsmiðjur og margt fleira.

Eftirfarandi kórar taka þátt í landsmótinu:

Jórukórinn Selfossi   Kyrjurnar Reykjavík   Senjorítur Kvennakórs Reykjavíkur   Cantabile Reykjavík   Heklurnar Mosfellsbæ   Kvennakór Reykjavíkur   Kvennakór Hafnarfjarðar   Kvennakór Hornafjarðar   Kvennakór Kópavogs   Kvennakórinn Ljósbrá Hellu   Kvennakórinn Norðurljós á Hólmavík   Salka Kvennakór Dalvík   Vox Humana – gestakór frá Noregi   Léttsveit Reykjavíkur   Kvennakór Garðabæjar   Kvennakór Ísafjarðar   Kvennakórinn Ymur Akranesi   Freyjukórinn Borgarfirði   Kvennakórinn Seljur Hafnarfirði   Héraðsdætur Egilsstöðum   Kvennakór Akureyrar
Lesa meira

Kvennakór Garðabæjar afhendir BUGL fjárstyrk

4. febrúar 2014

Kvennakór Garðabæjar afhendir BUGL fjárstyrk

Sala jólamerkis Kvennakórs Garðabæjar hófst í byrjun desember síðast liðinn og var hluti ágóðans ætlaður Barna- og unglingadeild LSH/BUGL. Þegar formaður kórsins, Kolbrún Pálsdóttir, hafði samband við BUGL og tilkynnti þessa ákvörðun var kórkonum boðið að koma og skoða deildina sem er til húsa við Dalbraut.

Fjölþætt starf BUGL
Í janúar lok mætti hluti kórkvenna ásamt Ingibjörgu Guðjónsdóttur kórstjóra í húsakynni BUGL. Þar tóku Guðrún Bryndís Guðmundsdóttir, yfirlæknir BUGL og Linda Kristmundsdóttir hjúkrunarfræðingur og deildarstjóri BUGL á móti hópnum og leiddu um húsakynnin og sögðu frá starfseminni.

Hluti deildarinnar er í nýju glæsilegu húsi með góðri aðstöðu til að taka á móti börnunum en eldri hlutinn hefur verið gerður fallega upp. Þarna er bæði göngudeild og legudeild og jafnvel rými til innlagnar fyrir heila fjölskyldu ef þörf er á því. Deildin er fallega skreytt og greinilegt að þar er hugsun að baki hverju handtaki. Til að mynda hefur sýning frá Gerðubergi sem byggð er á norrænu goðafræðinni verið sett upp þarna og geta börnin notið hennar.

Takk fyrir stuðninginn
Þarna fer augljóslega fram mikið og gott starf og er það kórkonum Kvennakórs Garðabæjar einstök ánægja að hafa getað lagt sitt á vogarskálarnar fyrir tilstuðlan þeirra sem keyptu jólamerkið. Við þökkum ykkur öllum stuðninginn.



Styrkurinn að góðum notum
Að leiðsögn og fræðslu lokinni afhentu Kolbrún formaður og Ingibjörg kórstjóri Guðrúnu Bryndísi og Lindu styrkinn og sögðu þær hann koma að góðum notum. Í lokin var kórkonum boðið upp á veitingar, spjall og spurningar og var dagurinn hinn ánægjulegasti og þökkum við hjartanlega fyrir hlýjar móttökur og óskum BUGL alls hins besta.

Framundan hjá Kvennakór Garðabæjar
23. febrúar: Söngur í konudagsmessu í Vídalínskirkju
6. mars: Góugleði Kvennakórs Garðabæjar í Tónlistarskóla Garðabæjar
Apríl: Söngur á jazzhátíð Garðabæjar
9.-11. maí: Landsmót íslenskra kvennakóra á Akureyri
Maí: Vortónleikar Kvennakórs Garðabæjar

Kvennakór Garðabæjar er á facebook
Hægt er að fylgjast með starfssemi kórsins á facebook síðu Kvennakórs Garðabæjar

Myndatexti
Afhending styrks Kvennakórs Garðabæjar til BUGL.
Frá vinstri: Kolbrún Pálsdóttir, formaður Kvennakórs Garðabæjar,
Guðrún Bryndís Guðmundsdóttir yfirlæknir BUGL,
Linda Kristmundsdóttir hjúkrunarfræðingur og deildarstjóri BUGL og
Ingibjörg Guðjónsdóttir kórstjóri Kvennakórs Garðabæjar.

Lesa meira
  • Fyrri
    • 1
    • ..
    • 38
    • 39
    • 40
    • 41
    • 42
    • 43
    • 44
    • 45
    • 46
    • 47
    • 48
    • ..
    • 189
  • Næsta

Eldri fréttir

  • Landsmót Gígjunnar haldið í maí 2023
    31. ágúst 2022
  • Landsmóti frestað til 2023
    25. janúar 2021
  • Verklagsreglur um æfingafyrirkomulag á tímum samkomutakmarkana fyrir kvennakóra innan Gígjunnar
    10. september 2020
  • Landsmót Gígjunnar haldið 16-18 sept 2021
    11. júní 2020
  • Landsmóti Gígjunnar frestað
    14. mars 2020
  • Þorravaka Kvennakórs Garðabæjar
    11. febrúar 2020
  • Jólakveðja
    25. desember 2019
  • Jólatónleikar Kvennakórs Hafnarfjarðar
    20. nóvember 2019
  • Aðventutónleikar Kvennakórs Garðabæjar
    19. nóvember 2019
  • Jólatónleikar Kvennakórs Kópavogs
    18. nóvember 2019
  • Jólatónleikar Léttsveitarinnar
    13. nóvember 2019
  • Kvenna megin
    1. nóvember 2019
  • Aðalfundur Gígjunnar 2019
    28. október 2019
  • Mæðradagstónleikar Kvennakórs Akureyrar
    8. maí 2019
  • Dívur – vortónleikar Kvennakórs Suðurnesja
    3. maí 2019
  • Vortónleikar Kvennakórs Kópavogs
    29. apríl 2019

Gígjan, landssamband íslenskra kvennakóra

  • Kleppsvegur 132, 104 Reykjavík
  • gigjan2003@gmail.com
  • 847 1724
  • 690403 3660
© 2025 Gígjan, landssamband íslenskra kvennakóra