• Fréttir
  • Tónlistin
    • Útgáfa
      • Freyjukórinn
      • Kvk Akureyrar
      • Kvennakór Suðurnesja
      • Norðurljós
      • Kvk Kaupmannahöfn
      • Léttsveit Rvíkur
      • Kvk Ljósbrá
      • Gospelsystur
      • Seljur
      • Lillukórinn
      • Ymur
      • Kvk Garðabæjar
      • Kvk Hafnarfjarðar
      • Jórukórinn
      • Kvk Reykjavíkur
      • Vox Feminae
    • Landsmót
      • Árið 2020 - Reykjavík
      • Árið 2017 - Ísafjörður
      • Árið 2014 - Akureyri
      • Árið 2011 - Selfoss
      • Árið 2008 - Hornafjörður
      • Árið 2005 - Hafnarfjörður
      • Árið 2002 - Reykjanesbær
      • Árið 1999 - Siglufjörður
      • Árið 1997 - Reykholt í Borgarfirði
      • Árið 1995 - Reykjavík
      • Árið 1992 - Ýdölum
    • Aðildakórar
      • Fyrrverandi aðildarkórar
    • Heiðursviðurkenningar
      • Hrönn Hjaltadóttir
      • Sigurbjörg Aðalsteinsdóttir
      • Aðalheiður Ósk Gunnarsdóttir
      • Gróa María Þorvaldsdóttir
      • Sigríður Anna Ellerup
      • Guðrún Ósk Sæmundsdóttir
      • Heiða Gunnarsdóttir
      • Margrét Pálmadóttir
      • Margrét Bóasdóttir
  • Um Gígjuna
    • Gígjan
    • Tónverkasjóður
    • Fundargerðir
    • Stofnfundur
    • Lög
    • Stjórn
      • Stjórn Gígjunnar 2018-2019
      • Stjórn Gígjunnar 2017-2018
      • Stjórn Gígjunnar 2016-2017
      • Stjórn Gígjunnar 2015-2016
      • Stjórn Gígjunnar 2014-2015
      • Stjórn Gígjunnar 2013-2014
      • Stjórn Gígjunnar 2012-2013
      • Stjórn Gígjunnar 2011-2012
      • Stjórn Gígjunnar 2010-2011
      • Stjórn Gígjunnar 2009-2010
      • Stjórn Gígjunnar 2008-2009
      • Stjórn Gígjunnar 2007-2008
      • Stjórn Gígjunnar 2006-2007
      • Stjórn Gígjunnar 2005-2006
      • Stjórn Gígjunnar 2004-2005
      • Stjórn Gígjunnar 2003-2004
  • Hafa samband
  • Fréttir
  • Forsíða
  • Hafa samband
  • Tónlistin
    • Útgáfa
    • Landsmót
    • Aðildakórar
    • Heiðursviðurkenningar
  • Um Gígjuna
    • Gígjan
    • Tónverkasjóður
    • Fundargerðir
    • Stofnfundur
    • Lög
    • Stjórn
  • 30074169_1661176133951423_1871409583_o

    Landssamband íslenskra Kvennakóra

  • Freyjukórinn
  • jorukorinn2017(1)
  • Kvennakór Reykjavíkur
  • Vortonleikar_2015_Gugga
  • Kvennakor Gardabaejar 1
  • Cantabile1

Kvennakórinn Seljur heldur konu-skemmtikvöld

15. febrúar 2013

Kvennakórinn Seljur heldur "Konu-skemmtikvöld" í Seljakirkju þriðjudaginn 19. febrúar.
Ýmislegt fróðlegt og skemmtilegt verður á dagskrá, t.d. fyrirlestrar, förðun, tískusýning, söngur og kaffihlaðborð.

Verð kr. 2000

Seljurnar vonast til að sjá sem flestar konur.

Lesa meira

Syngjandi konur á Vesturlandi

2. febrúar 2013

Helgina 2.-3. mars næstkomandi mun Freyjukórinn í Borgarfirði standa fyrir söngbúðum í Hjálmakletti í Borgarnesi. 

Söngbúðirnar bera heitið „Syngjandi konur á Vesturlandi“. Markmiðið er að efla söng og söngþjálfun meðal kvenna á Vesturlandi, dýpka og breikka sviðið með því að fá eina færustu djass söngkonu Íslands, Kristjönu Stefánsdóttur til að leiðbeina.

Þetta er í annað skiptið sem Freyjukórinn stendur fyrir svona sönghelgi en í fyrra tóku um sjötíu konur þátt í söngbúðunum.

Þetta er frábært tækifæri og eru allar konur sem áhuga hafa hvattar til að vera með. 

Aðstandendur vilja fá sem flestar konur, úr sem flestum kórum en einnig er þetta kjörið tækifæri fyrir þær sem ekki eru í kór.

Nánari upplýsingar um söngbúðirnar má sjá hér.

Lesa meira

Frumflutningur hátíðarmessu fyrir kvennakór á Myrkum músíkdögum

2. febrúar 2013

Næstkomandi sunnudag þann 3. febrúar kl. 15 mun Vox feminae syngja á tónleikum í Háteigskirkju undir merkjum Myrkra músikdaga.
Yfirskrift tónleikanna er "Maríumessa" en á tónleikunum frumflytur kórinn hátíðarmessu í sex þáttum eftir Báru Grímsdóttur, en verkið samdi hún fyrir Vox feminae og Margréti J. Pálmadóttur stjórnanda hans.
Kórinn fékk styrk frá Hlaðvarpanum og tónverkasjóði Gígjunnar til verkefnisins árið 2011 og er nú komið að frumflutningi verksins.  Það er mikið fagnaðarefni þegar svo metnaðarfull verk eru samin fyrir kvennakóra og Vox feminae mikill heiður að fá tækifæri til þess að frumflytja verkið á Myrkum músíkdögum.

Auk messunnar mun kórinn flytja verk samin til heiðurs Maríu mey; "Ég vil lofa eina þá" eftir Báru Grímsdóttur og þrjú ólík verk sem öll eru samin við latneska textann "Salve Regina" (Heill þér María) og eru þau eftir Hjálmar H. Ragnarsson, Javier Busto og Gerhard Deutschmann.

Tónleikarnir á sunnudaginn hefjast kl. 15 og er miðasala við innganginn.

Lesa meira

20 ára afmæli Kvennakórs Reykjavíkur 25. janúar 2013

25. janúar 2013

Á haustdögum 1992 voru nokkrar konur á námskeiði í kórskóla í Kramhúsinu hjá Margréti Pálmadóttur. Að loknu námskeiðinu og tónleikum í Kristskirkju fyrir jólin varð þeim öllum ljóst að þær yrðu að halda áfram. Margrét hafði átt þann draum að stofna stóran kvennakór og nú gerðist undrið. Auglýst var eftir fleiri félögum og 25. janúar 1993 var fyrsta æfing Kvennakórs Reykjavíkur haldin. Margrét var fyrsti stjórnandi kvennakórsins og á fjórum árum óx hann og dafnaði og gat af sér fleiri kóra og 1997 voru fimm kórar starfandi undir nafni Kvennakórs Reykjavíkur með 400 – 500 félaga, en þeir voru auk hans Vox Feminae, Léttsveitin, Gospelsystur og Senjórítur. Árið 2000 skiptust kórarnir í sjálfstæðar rekstrareiningar.

Segja má að frumkvöðlastarf kvennanna 1993 hafi hrundið af stað tónlistarævintýri. Þetta varð hvatning að stofnun fleiri kvennakóra sem glætt hafa tónlistarlíf um land allt æ síðan.

Stjórnendur Kvennakórs Reykjavíkur frá upphafi eru Margrét Pálmadóttir (1993 – 1997), Sigrún Þorgeirsdóttir (1997 – 2010) og Ágota Joó síðan 2010.

Lesa meira
  • Fyrri
    • 1
    • ..
    • 52
    • 53
    • 54
    • 55
    • 56
    • 57
    • 58
    • 59
    • 60
    • 61
    • 62
    • ..
    • 189
  • Næsta

Eldri fréttir

  • Landsmót Gígjunnar haldið í maí 2023
    31. ágúst 2022
  • Landsmóti frestað til 2023
    25. janúar 2021
  • Verklagsreglur um æfingafyrirkomulag á tímum samkomutakmarkana fyrir kvennakóra innan Gígjunnar
    10. september 2020
  • Landsmót Gígjunnar haldið 16-18 sept 2021
    11. júní 2020
  • Landsmóti Gígjunnar frestað
    14. mars 2020
  • Þorravaka Kvennakórs Garðabæjar
    11. febrúar 2020
  • Jólakveðja
    25. desember 2019
  • Jólatónleikar Kvennakórs Hafnarfjarðar
    20. nóvember 2019
  • Aðventutónleikar Kvennakórs Garðabæjar
    19. nóvember 2019
  • Jólatónleikar Kvennakórs Kópavogs
    18. nóvember 2019
  • Jólatónleikar Léttsveitarinnar
    13. nóvember 2019
  • Kvenna megin
    1. nóvember 2019
  • Aðalfundur Gígjunnar 2019
    28. október 2019
  • Mæðradagstónleikar Kvennakórs Akureyrar
    8. maí 2019
  • Dívur – vortónleikar Kvennakórs Suðurnesja
    3. maí 2019
  • Vortónleikar Kvennakórs Kópavogs
    29. apríl 2019

Gígjan, landssamband íslenskra kvennakóra

  • Kleppsvegur 132, 104 Reykjavík
  • gigjan2003@gmail.com
  • 847 1724
  • 690403 3660
© 2025 Gígjan, landssamband íslenskra kvennakóra