• Fréttir
  • Tónlistin
    • Útgáfa
      • Freyjukórinn
      • Kvk Akureyrar
      • Kvennakór Suðurnesja
      • Norðurljós
      • Kvk Kaupmannahöfn
      • Léttsveit Rvíkur
      • Kvk Ljósbrá
      • Gospelsystur
      • Seljur
      • Lillukórinn
      • Ymur
      • Kvk Garðabæjar
      • Kvk Hafnarfjarðar
      • Jórukórinn
      • Kvk Reykjavíkur
      • Vox Feminae
    • Landsmót
      • Árið 2020 - Reykjavík
      • Árið 2017 - Ísafjörður
      • Árið 2014 - Akureyri
      • Árið 2011 - Selfoss
      • Árið 2008 - Hornafjörður
      • Árið 2005 - Hafnarfjörður
      • Árið 2002 - Reykjanesbær
      • Árið 1999 - Siglufjörður
      • Árið 1997 - Reykholt í Borgarfirði
      • Árið 1995 - Reykjavík
      • Árið 1992 - Ýdölum
    • Aðildakórar
      • Fyrrverandi aðildarkórar
    • Heiðursviðurkenningar
      • Hrönn Hjaltadóttir
      • Sigurbjörg Aðalsteinsdóttir
      • Aðalheiður Ósk Gunnarsdóttir
      • Gróa María Þorvaldsdóttir
      • Sigríður Anna Ellerup
      • Guðrún Ósk Sæmundsdóttir
      • Heiða Gunnarsdóttir
      • Margrét Pálmadóttir
      • Margrét Bóasdóttir
  • Um Gígjuna
    • Gígjan
    • Tónverkasjóður
    • Fundargerðir
    • Stofnfundur
    • Lög
    • Stjórn
      • Stjórn Gígjunnar 2018-2019
      • Stjórn Gígjunnar 2017-2018
      • Stjórn Gígjunnar 2016-2017
      • Stjórn Gígjunnar 2015-2016
      • Stjórn Gígjunnar 2014-2015
      • Stjórn Gígjunnar 2013-2014
      • Stjórn Gígjunnar 2012-2013
      • Stjórn Gígjunnar 2011-2012
      • Stjórn Gígjunnar 2010-2011
      • Stjórn Gígjunnar 2009-2010
      • Stjórn Gígjunnar 2008-2009
      • Stjórn Gígjunnar 2007-2008
      • Stjórn Gígjunnar 2006-2007
      • Stjórn Gígjunnar 2005-2006
      • Stjórn Gígjunnar 2004-2005
      • Stjórn Gígjunnar 2003-2004
  • Hafa samband
  • Fréttir
  • Forsíða
  • Hafa samband
  • Tónlistin
    • Útgáfa
    • Landsmót
    • Aðildakórar
    • Heiðursviðurkenningar
  • Um Gígjuna
    • Gígjan
    • Tónverkasjóður
    • Fundargerðir
    • Stofnfundur
    • Lög
    • Stjórn
  • 30074169_1661176133951423_1871409583_o

    Landssamband íslenskra Kvennakóra

  • Freyjukórinn
  • jorukorinn2017(1)
  • Kvennakór Reykjavíkur
  • Vortonleikar_2015_Gugga
  • Kvennakor Gardabaejar 1
  • Cantabile1

Kvennakór Akureyrar á Siglufirði

30. apríl 2012

Sunnudaginn 6. maí n.k. leggur Kvennakór Akureyrar land undir fót til Siglufjarðar. Kórinn er þó ekki einn á ferð því með í för er Karlakór Akureyrar - Geysir og ætla kórarnir að halda sameiginlega tónleika í Siglufjarðarkirkju. Karlakór Siglufjarðar tekur á móti kórunum og syngur nokkur lög með Karlakór Akureyrar-Geysi. Jónas Þór Jónasson syngur einsöng með kórnum og kvartett skipaður félögum úr Karlakór Akureyrar-Geysi tekur einnig lagið.
Söngskráin er afar fjölbreytt og má þar finna bæði íslensk og erlend lög, allt frá þjóðlögum til nýrri tónsmíða. Sungin eru lög við ljóð kunnra höfunda svo sem Davíðs Stefánssonar, Jónasar Hallgrímssonar, Steingríms Thorsteinssonar, Megasar o.fl. en einnig syngja kórarnir á ensku, þýsku, ítölsku og japönsku svo nokkuð sé nefnt.

Kvennakór Akureyrar  er á leið í söngferðalag til Kanada í ágúst næstkomandi og er því efnisskráin orðin afar þjóðleg og fjölbreytt.

Stjórnandi Kvennakórs Akureyrar er Daníel Þorsteinsson og mun hann einnig annast undirleik. Stjórnandi Karlakórs Akureyrar-Geysis er Valmar Väljaots.

Tónleikarnir í Siglufjarðarkirkju hefjast kl. 15:00, miðar seljast við innganginn og kosta kr. 2000.- . Að loknum tónleikum þiggja kórfélagar veitingar á Kaffi Rauðku, áður en haldið verður heim á leið.

Lesa meira

University of Manitoba Women's Chorus

29. apríl 2012

UNIVERSITY OF MANITOBA WOMEN’S CHORUS er kvennakór frá háskólanum í Winnipeg í Kanada, undir stjórn dr. Elroy Friesen. Kórinn var stofnaður árið 1990 og hefur komið fram við ýmis tækifæri auk eigin tónleika. Meðal annars hefur hann sungið með Winnipeg Symphony Orchestra, Prairie Voices, Canzona, Musik Barock og á tónlistarhátíðinni New Music Festival, svo að eitthvað sé nefnt. Í kórnum eru nemar úr tónlistardeild háskólans, starfsmenn skólans og fólk víðar úr samfélaginu.

Kórinn er nú í sinni fyrstu utanlandsferð og tekur 21 kórfélagi þátt í ferðinni og einnig er 7 manna málmblásarasveit með í för. Á efnisskrá kórsins er kirkjuleg tónlist og veraldleg, frá Kanada og Bandaríkjunum, og einnig syngur kórinn nokkur íslensk lög.

Kórinn tekur þátt í þrennum tónleikum á höfuðborgarsvæðinu vikuna 1.-5. maí 2012:

  • Þriðjudaginn 1. maí kl. 20:00 í Háteigskirkju kemur kórinn fram ásamt Kvennakór Háskóla Íslands undir stjórn Margrétar Bóasdóttur og Kvennakór Kópavogs undir stjórn Gróu Hreinsdóttur.
  • Föstudaginn 4. maí kl. 12:30 syngur kórinn á hádegistónleikum á Háskólatorgi ásamt Kvennakór Háskóla Íslands.
  • Föstudaginn 4. maí kl. 20:00 flytur kórinn alla efnisskrá sína í Digraneskirkju.

Akureyringum gefst svo kostur á að hlýða á kórinn í anddyri Hofs mánudaginn 7. maí kl. 17:00 þar sem kórinn syngur fyrir gesti og gangandi.

Kórinn kemur fram á nokkrum öðrum stöðum, en þar er helst að nefna tónleika ásamt Reykjalundarkórnum í Fríkirkjunni í Reykjavík sunnudaginn 6. maí kl. 17:00. Þær munu einnig syngja við messur í Háteigskirkju sunnudaginn 6. maí og í Hallgrímskirkju sunnudaginn 13. maí auk þess að syngja á hjúkrunarheimilum og í Ljósinu.

Aðgangur að öllum tónleikum er ókeypis en tekið er á móti frjálsum framlögum að afloknum tónleikum.

Lesa meira

Senjóríturnar halda vortónleika í Grensáskirkju

28. apríl 2012

Kvennakórinn Senjóríturnar heldur sína árlegu vortónleika í Grensáskirkju laugardaginn 5. maí kl. 14:00.

Á skemmtilegri efnisskrá eru bæði innlend og erlend lög.

Senjóríturnar eru sjálfstæð deild innan Kvennakórs Reykjavíkur. Söngkonur eru allar 60+ ára og hafa margar langan söngferil að baki.

Stjórnandi kórsins er Ågota Joó og undirleikari Vilberg Viggósson.

Aðgangseyrir er kr. 1500 fyrir fullorðna og kr. 600 fyrir börn. Ekki verður posi til að taka við kortagreiðslum á staðnum og eru tónleikagestir því vinsamlega beðnir um að hafa pening meðferðis.

Lesa meira

Kvennakór Reykjavíkur tekur þátt í Whitney Houston heiðurstónleikum í Austurbæ

28. apríl 2012

Það er okkur öllum mikill harmur að sjá á eftir einni skærustu og bestu söngkonu síðari ára deyja langt fyrir aldur fram aðeins 48 ára gömul. 

Whitney Houston kom inn í tónlistarbransann eins og stormsveipur og vann hug og hjörtu allra sem á hana hlýddu..

Við höfum henni margt að þakka og þá ekki síst fyrir það hvernig hún setti markið hærra og hefur fyllt okkur löngun til að ná lengra, fyrir það erum við þakklát. Við viljum því heiðra minningu stjörnunnar og boða til tónleika þar sem tekin verða hennar bestu lög.

Tónleikarnir verða haldnir í Austurbæ þann 4. maí kl. 20.00 en húsið mun opna kl. 19.00

Fram koma þau Jóhanna Guðrún, Íris Hólm, Hanna Guðný, Ína Valgerður, Guðrún Árný ásamt Magna og
Kvennakór Reykjavíkur.

Hljómsveit skipa þeir Benedikt Brynleifsson (trommur), Ingvar Alfreðsson (hljómborð), Kristján Grétarsson (gítar) og Róbert Þórhallsson (bassa)

Miðasala er á midi.is

Lesa meira
  • Fyrri
    • 1
    • ..
    • 62
    • 63
    • 64
    • 65
    • 66
    • 67
    • 68
    • 69
    • 70
    • 71
    • 72
    • ..
    • 189
  • Næsta

Eldri fréttir

  • Landsmót Gígjunnar haldið í maí 2023
    31. ágúst 2022
  • Landsmóti frestað til 2023
    25. janúar 2021
  • Verklagsreglur um æfingafyrirkomulag á tímum samkomutakmarkana fyrir kvennakóra innan Gígjunnar
    10. september 2020
  • Landsmót Gígjunnar haldið 16-18 sept 2021
    11. júní 2020
  • Landsmóti Gígjunnar frestað
    14. mars 2020
  • Þorravaka Kvennakórs Garðabæjar
    11. febrúar 2020
  • Jólakveðja
    25. desember 2019
  • Jólatónleikar Kvennakórs Hafnarfjarðar
    20. nóvember 2019
  • Aðventutónleikar Kvennakórs Garðabæjar
    19. nóvember 2019
  • Jólatónleikar Kvennakórs Kópavogs
    18. nóvember 2019
  • Jólatónleikar Léttsveitarinnar
    13. nóvember 2019
  • Kvenna megin
    1. nóvember 2019
  • Aðalfundur Gígjunnar 2019
    28. október 2019
  • Mæðradagstónleikar Kvennakórs Akureyrar
    8. maí 2019
  • Dívur – vortónleikar Kvennakórs Suðurnesja
    3. maí 2019
  • Vortónleikar Kvennakórs Kópavogs
    29. apríl 2019

Gígjan, landssamband íslenskra kvennakóra

  • Kleppsvegur 132, 104 Reykjavík
  • gigjan2003@gmail.com
  • 847 1724
  • 690403 3660
© 2025 Gígjan, landssamband íslenskra kvennakóra