• Fréttir
  • Tónlistin
    • Útgáfa
      • Freyjukórinn
      • Kvk Akureyrar
      • Kvennakór Suðurnesja
      • Norðurljós
      • Kvk Kaupmannahöfn
      • Léttsveit Rvíkur
      • Kvk Ljósbrá
      • Gospelsystur
      • Seljur
      • Lillukórinn
      • Ymur
      • Kvk Garðabæjar
      • Kvk Hafnarfjarðar
      • Jórukórinn
      • Kvk Reykjavíkur
      • Vox Feminae
    • Landsmót
      • Árið 2020 - Reykjavík
      • Árið 2017 - Ísafjörður
      • Árið 2014 - Akureyri
      • Árið 2011 - Selfoss
      • Árið 2008 - Hornafjörður
      • Árið 2005 - Hafnarfjörður
      • Árið 2002 - Reykjanesbær
      • Árið 1999 - Siglufjörður
      • Árið 1997 - Reykholt í Borgarfirði
      • Árið 1995 - Reykjavík
      • Árið 1992 - Ýdölum
    • Aðildakórar
      • Fyrrverandi aðildarkórar
    • Heiðursviðurkenningar
      • Hrönn Hjaltadóttir
      • Sigurbjörg Aðalsteinsdóttir
      • Aðalheiður Ósk Gunnarsdóttir
      • Gróa María Þorvaldsdóttir
      • Sigríður Anna Ellerup
      • Guðrún Ósk Sæmundsdóttir
      • Heiða Gunnarsdóttir
      • Margrét Pálmadóttir
      • Margrét Bóasdóttir
  • Um Gígjuna
    • Gígjan
    • Tónverkasjóður
    • Fundargerðir
    • Stofnfundur
    • Lög
    • Stjórn
      • Stjórn Gígjunnar 2018-2019
      • Stjórn Gígjunnar 2017-2018
      • Stjórn Gígjunnar 2016-2017
      • Stjórn Gígjunnar 2015-2016
      • Stjórn Gígjunnar 2014-2015
      • Stjórn Gígjunnar 2013-2014
      • Stjórn Gígjunnar 2012-2013
      • Stjórn Gígjunnar 2011-2012
      • Stjórn Gígjunnar 2010-2011
      • Stjórn Gígjunnar 2009-2010
      • Stjórn Gígjunnar 2008-2009
      • Stjórn Gígjunnar 2007-2008
      • Stjórn Gígjunnar 2006-2007
      • Stjórn Gígjunnar 2005-2006
      • Stjórn Gígjunnar 2004-2005
      • Stjórn Gígjunnar 2003-2004
  • Hafa samband
  • Fréttir
  • Forsíða
  • Hafa samband
  • Tónlistin
    • Útgáfa
    • Landsmót
    • Aðildakórar
    • Heiðursviðurkenningar
  • Um Gígjuna
    • Gígjan
    • Tónverkasjóður
    • Fundargerðir
    • Stofnfundur
    • Lög
    • Stjórn
  • 30074169_1661176133951423_1871409583_o

    Landssamband íslenskra Kvennakóra

  • Freyjukórinn
  • jorukorinn2017(1)
  • Kvennakór Reykjavíkur
  • Vortonleikar_2015_Gugga
  • Kvennakor Gardabaejar 1
  • Cantabile1

Fréttir af Kvennakór Öldutúns

7. apríl 2010

Kvennakór Öldutúns æfði í vetur kafla úr Stabat Mater eftir Pergolesi. Verkið var flutt í heild sinni 27. mars í Hafnarfjarðarkirkju. Þátttakendur voru Kvennakór Öldutúns, nemendur úr Söngskóla Domus vox, Hanna Björk Guðjónsdóttir sópran, Svava Kristín Ingólfsdóttir alt, Guðmundur Sigurðsson orgel og strengjakvartett. Einnig flutti Kvennakór Öldutúns trúarlega tónlist úr ýmsum áttum.

Kvennakór Öldutúns fór í æfingabúðir að Hótel Hamri í Borgarfirði 19. og 20. febrúar. Þar var frábært að vera fyrir utan söngaðstöðuna. Það hljómaði sérstakleg illa þar, ekkert í umhverfinu sem hjálpaði tóninum að lifa.

Í vor nánar tiltekið 28. og 29. maí heldur Kvennakór Öldutúns till Akureyrar. Þar á kórinn stefnumót við Karlakór frá Akureyri. Ekki er enn ákveðið hvar tónleikarnir verða en hugmynd er að halda þá í Hrísey. Konurnar flytja þar lög frá norðurlöndum og svo koma kórarnir til með að syngja saman nokkur lög.

Lesa meira

Æfingabúðir Kvennakórs Garðabæjar á Bifröst

7. apríl 2010

Kúrekar, feneyskar grímudansmeyjar og blómarósir mættu á kvöldvökuna!

Borgarfjörður skartaði sínu fegursta þegar rúta með Kvennakór Garðabæjar renndi í hlað á Bifröst á laugardagsmorgni þann 20. mars síðastliðinn. Heimamenn á Bifröst tóku sérdeilis vel á móti kórnum, uppbúin rúm biðu kvennanna í þægilegum tveggja manna herbergjum og auk þess er í skólanum hin ákjósanlegasta aðstaða til kóræfinga.

Æfingabúðir um þetta leyti árs eru orðnar að fastri hefð hjá kórnum og eru eitt helsta tilhlökkunarefni kórkvenna á vorönn. Þéttar og langar æfingar í tvo daga skila geysilega góðum árangri og vináttuböndin styrkjast.

Þótt megin tilgangur æfingabúða sé vitanlega sá að fínpússa og fegra kórverkin sem flutt verða á komandi vortónleikum gefa kórkonur sér þó tíma til að brjóta upp stíft æfingaprógramm og bregða á leik. Kórinn fékk hátíðasal skólans til afnota á laugardagskvöldið og skreytti hann fagurlega. Kórkonurnar klæddu sig upp í hina ýmsu búninga en hver rödd hafði ákveðið eigið þema. Fyrsti sópran birtist sem kúrekar norðursins, annar sópran sem seiðandi feneyskar grímudansmeyjar og altinn mætti sem rómantískar blómarósir. Kórkonur skemmtu síðan hver annarri með heilmatilbúnum skemmtiatriðum og, síðast en ekki síst, gæddu sér á gómsætri veislumáltíð sem kokkur staðarins töfraði fram. Þótt dansað væri og sungið fram eftir kvöldi voru þó allar mættar til æfinga á tilsettum tíma á sunnudagsmorgni til áframhaldandi æfinga fram eftir degi. Raddböndin urðu fljótt flauelsmjúk aftur eftir uppsöngsæfingar kórstjórans, Ingibjargar Guðjónsdóttur, sem að sjálfsögðu stýrði þessu langa æfingaferli fimlega með aðstoð píanóleikarans, Sólveigar Önnu Jónsdóttur.

Kvennakór Garðabæjar stendur nú á merkum tímamótum, er að ljúka tíunda starfsárinu og æfir af kappi fyrir veglega afmælistónleika í Langholtskirkju þann 2. maí næstkomandi þar sem hin ýmsu hljófæri munu koma við sögu. Við munum senda Gígjunni fréttir af þeim viðburði þegar nær dregur.

Lesa meira

Fréttir frá Kvennakór Akureyrar

11. mars 2010

Æfingar hófust aftur eftir jólafrí þann 10 janúar og var þá farið að huga að dagskrá fyrir vorið eftir að hafa gert hlé á því fyrir jólalögin.

Á konudaginn 21. febrúar var haldinn GoRed dagur á Hótel Kea, en hann er haldinn til að efla fræðslu um forvarnir og áhættuþætti hjarta- og æðasjúkdóma hjá konum. Kórinn söng í upphafi og lok dagskrár og fékk mjög góðar viðtökur.

Næst á dagskránni er svo árshátíð kórsins sem haldin verður n.k. laugardag 13. mars í Bjargi við Bugðusíðu. Árshátíðarnefnd starfar á fullu við undirbúning og hver rödd fyrir sig undirbýr skemmtiatriði. Síðan verður borðað og sungið og dansað fram eftir nóttu.

Laugardaginn 20 mars verður svo æfingadagur í Valsárskóla á Svalbarðsströnd. Þar verður æft frá 10 – 18 og einnig hlýtt á erindi frá Valdísi Jónsdóttur talmeinafræðingi sem ætlar að ræða um raddböndin, raddbeitingu og raddvernd og kenna kórfélögum aðferð til að þjálfa raddböndin og ná betri öndunartækni.

Kvennakór Suðurnesja kemur í heimsókn í maí og verða haldnir sameiginleigir tónleikar með þeim 8. maí.  Vortónleikar kórsins verða svo 30. maí n.k. en nánar verður sagt frá þessum  tónleikum síðar..

Lesa meira

Vox feminae heimsækir Suðurland

11. mars 2010

Helgina 13. – 14. mars ætlar Vox feminae í æfingabúðir í Skálholti.  Íbúum Suðurlands gefst kostur á að hlýða á söng kórsins tvisvar sinnum á sunnudaginn, annars vegar í messu í Skálholtskirkju kl. 11 og hins vegar í Þorlákskirkju í Þorlákshöfn kl. 14, þar sem söngurinn verður í fyrirrúmi.
 
Skálholt skipar sérstakan sess í huga kórfélaga Vox feminae enda fer kórinn reglulega þangað í æfingabúðir, syngur við messur og við önnur tækifæri. Það er kórnum einnig mikil ánægja að syngja nú í fyrsta sinn fyrir íbúa Þorlákshafnar og vonast til að sem flestir sjái sér fært að mæta og hlýða á söng kórsins.
 
Organisti í messunni er Hannes Baldursson.

Lesa meira
  • Fyrri
    • 1
    • ..
    • 92
    • 93
    • 94
    • 95
    • 96
    • 97
    • 98
    • 99
    • 100
    • 101
    • 102
    • ..
    • 189
  • Næsta

Eldri fréttir

  • Landsmót Gígjunnar haldið í maí 2023
    31. ágúst 2022
  • Landsmóti frestað til 2023
    25. janúar 2021
  • Verklagsreglur um æfingafyrirkomulag á tímum samkomutakmarkana fyrir kvennakóra innan Gígjunnar
    10. september 2020
  • Landsmót Gígjunnar haldið 16-18 sept 2021
    11. júní 2020
  • Landsmóti Gígjunnar frestað
    14. mars 2020
  • Þorravaka Kvennakórs Garðabæjar
    11. febrúar 2020
  • Jólakveðja
    25. desember 2019
  • Jólatónleikar Kvennakórs Hafnarfjarðar
    20. nóvember 2019
  • Aðventutónleikar Kvennakórs Garðabæjar
    19. nóvember 2019
  • Jólatónleikar Kvennakórs Kópavogs
    18. nóvember 2019
  • Jólatónleikar Léttsveitarinnar
    13. nóvember 2019
  • Kvenna megin
    1. nóvember 2019
  • Aðalfundur Gígjunnar 2019
    28. október 2019
  • Mæðradagstónleikar Kvennakórs Akureyrar
    8. maí 2019
  • Dívur – vortónleikar Kvennakórs Suðurnesja
    3. maí 2019
  • Vortónleikar Kvennakórs Kópavogs
    29. apríl 2019

Gígjan, landssamband íslenskra kvennakóra

  • Kleppsvegur 132, 104 Reykjavík
  • gigjan2003@gmail.com
  • 847 1724
  • 690403 3660
© 2025 Gígjan, landssamband íslenskra kvennakóra