Vortónleikar Kvennakórs Akureyrar verða haldnir í Tónlistarhúsinu Laugarborg sunnudaginn 22. maí kl. 16.00.
Efnisskráin er fjölbreytt og skemmtileg og mun kórinn m.a. syngja nokkur lög frá nýafstöðnu landsmóti kvennakóra á Selfossi. Má þar nefna Sumar konur eftir Bubba Morthens og Time to say goodbye.
Einsöngvari með kórnum er Eyrún Unnarsdóttir messósópran og syngur hún nokkur vel valin lög.
Stjórnandi og undirleikari er Daníel Þorsteinsson.
Miðaverð er 2.000 krónur og 1.500 krónur fyrir ellilífeyrisþega. Því miður er ekki tekið við greiðslukortum. Frítt er fyrir 12 ára og yngri.
Góða skemmtun!