Kvennakór Garðabæjar getur bætt við sig söngelskum konum í allar raddir. Fjölbreytt lagaval, frábær félagsskapur, metnaðarfullt kórstarf og lágmarks fjáröflun er það sem meðal annars er boðið uppá. Fyrsta kóræfing vetrarins verður mánudaginn 25. ágúst, sem fyrr verður æft í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli öll mánudagskvöld, kl. 19.30-22.30 og eitt fimmtudagskvöld í mánuði. Vetrarstarf kórsins verður með hefðbundnu sniði en geta má árlegrar haustvöku auk hátíðlegra aðventutónleika og veglegra vortónleika. Auk þess verður farið í söngferð til Stykkishólms í október og næsta sumar er ætlunin að fara í tónleikaferð út fyrir landsteinana. Lagaval kórsins hefur frá upphafi verið einstaklega fjölbreytt og má nefna að í ár verður áhersla lögð á léttari sönglög og þjóðlagasyrpur. Haustið er heppilegur tími til að bæta við nýjum kórfélögum og því eru áhugasamar og söngelskar konur hvattar til að líta á heimasíðu kórsins.
Kvennakór Garðabæjar býður nýja félaga velkomna í hópinn
Kórinn hefur ætíð verið þekktur fyrir vandaðan söng og metnaðarfullt starf og hefur Bæjarstjórn Garðabæjar sýnt kórnum mikla viðurkenningu með starfssamnings til þriggja ára í senn. Fjöldi kórkvenna hefur á síðast liðnum árum haldist svipaður eða um 40 kórkonur sem margar hafa sungið með frá upphafi. Kórinn, sem nú er að hefja níunda starfsárið, vill gjarnan fjölga í hópnum og má sjá auglýsingar þess efnis í Garðapóstinum og Fréttablaðinu. Haustið er heppilegur tími til að bæta við nýjum kórfélögum og því eru áhugasamar og söngelskar konur hvattar til að líta á heimasíðu kórsins http://www.kvennakor.is þar sem nánari upplýsingar er að finna um blómlega starfsemi og skemmtilegan félagsskap. Einnig má hafa samband við Ingibjörgu kórstjóra í síma 864 2722 eða á netfangið kvennakor(hjá)kvennakor.is. Kórkonur eru víða af höfuðborgarsvæðinu og er því búseta í Garðabæ ekki skilyrði.