Kvennakór Hafnarfjarðar heldur sinn marg rómaða kökubasar næsta föstudag, 30. nóvember. Basarinn verður í Firðinum, verslunarmiðstöðinni í Hafnarfirði og hefst stundvíslega kl. 13.00. Að vanda verður borðið hlaðið hnallþórum að hætti kvennakórs kvenna Hafnarfjarðar. Um að gera að mæta á staðinn til þess að næla sér í flotta tertu til að njóta strax nú eða bara til að skella í frost fyrir jólin. Sjón er sögu ríkari. Við tökum vel á móti ykkur í Firðinum Hafnarfirði.