Laugardaginn 15. maí flytur Dr. Annette Kreutziger-Herr, prófessor í tónlistarfræði við tónlistarháskólann í Köln, erindið:
Af hverju konur í (tónlistar) sögunni skipta máli.
Fyrirlesturinn verður haldinn kl. 15.00 í Sölvhóli, sal Listaháskóla Íslands við Sölvhólsgötu.
Í fyrirlestri sínum fjallar Dr. Kreutziger-Herr um mikilvægi kvenna í vestrænni tónlistarsögu og skoðar dæmi um áhrif þeirra á strauma og stefnur í tónlistarmenningu allt frá tímum Hildegard von Bingen og fram á okkar daga. Þeirri spurningu er velt upp hvort hlutur kvenna í tónlistarsögunni sé í raun jafn rýr og viðtekin söguskoðun gefur til kynna. Fyrirlesturinn fer fram á ensku.
Að loknum fyrirlestri verður boðið upp á veitingar.
Fyrirlesturinn er haldinn með stuðningi frá Þýska sendiráðinu og í samvinnu við Listaháskóla Íslands og Rannsóknastofu í kvenna- og kynjafræðum við Háskóla Íslands.