Laugardaginn 8. nóvember verður glæsileg söngskemmtun í Mosfellsbæ. Þrír karlakórar og einn kvennakór þenja þar raddböndin. Kórarnir eru: Kvennakór Akureyrar, Karlakórinn Stefnir í Mosfellsbæ, Karlakór Kópavogs og Karlakórinn Söngbræður úr Borgarfirði.
Þessir glæsilegu kórar halda saman tónleika í Íþróttahúsinu að Varmá í Mosfellsbæ kl. 16:00. Hver kór mun syngja nokkur lög og svo mynda þeir saman blandaðan kór.