Tónleikar í Hjallakirkju miðvikudaginn 14. október 2015 kl. 20:30.
Stjórnandi er Margrét J. Pálmadóttir. Guðný Einarsdóttir leikur á sembal og Helga Aðalheiður Jónsdóttir leikur á blokkflautu.
Miðvikudaginn 14. október næstkomandi heldur Vox feminae tónleika í Hjallakirkju í Kópavogi þar sem flutt verður dægurtónlist frá 16. öld. Madrigalar voru nokkurs konar dægurlög miðalda, en söngvarnir voru alla jafna ástar- og tregaljóð. Á miðöldum var flutningur þeirra oftast í höndum þjálfaðra tónlistarmanna sem sungu saman í litlum hópum sem oft voru eingöngu skipaðir konum. Á þessum tíma var konum meinað að syngja í kirkjum og þar af leiðandi voru þetta oft einu tækifæri kvenna til að iðka tónlist sína. Vox feminae finnst við hæfi að gera þessari tegund tónlistar hátt undir höfði, nú þegar við minnumst 100 ára afmælis kosningaréttar kvenna á Íslandi.
Vox feminae var stofnaður árið 1993 af Margréti J. Pálmadóttur og hefur hún verið listrænn stjórnandi kórsins frá upphafi. Kórinn hefur fengið tvær tónlistarkonur til liðs við sig á þessum tónleikum, þær Guðnýju Einarsdóttur sem leikur á sembal og Helgu Aðalheiði Jónsdóttur sem leikur á blokkflautu.
Tónleikarnir í Hjallakirkju hefjast kl. 20:30. Miðaverð er kr. 2900 og miðasala er við innganginn og hjá kórfélögum.