Kvennakórinn Ljósbrá ásamt Kyrjukórnum frá Þorlákshöfn og Uppsveitarsystrum halda tónleika í Hvoli, Hvolsvelli, föstudaginn 12. nóvember.
Hver kór flytur nokkur lög og síðan taka kórarnir lagið saman. Flutt verða létt og leikandi lög við allra hæfi.
Tónleikarnir hefjast kl. 20:30.
Aðgangseyrir kr. 1500.
Frítt fyrir 16 ára og yngri
Ath. ekki posi á staðnum.
Hlökkum til að sjá ykkur