Kvennakórinn Seljur halda sína árlegu vortónleika í Seljakirkju laugardaginn 19. apríl kl. 17.00. Tónleikarnir bera nafnið "Þín innsta þrá". Stjórnandi Seljanna er Svava Kristín Ingólfsdóttir en hún mun jafnframt syngja einsöng með kórnum. Fjöldi tónlistarmanna kemur fram með Seljunum á þessum vortónleikum en þeir eru: Linda Antonsdóttir sem einnig syngur einsöng með kórnum, Aðalheiður Þorsteinsdóttir sem leikur með á píanó, Tómas R. Einarsson leikur á kontrabassa, Ragnar Hermannsson leikur á gítar og flautuleikur er í höndum Birtu Drafnar Valsdóttur. Komið og njótið söngsins og fangið með okkur komandi sumri. Miðar verða seldir við innganginn, aðgangseyrir kr. 1500.-