Næstkomandi föstudag og laugardag 18. og 19. maí heldur Jórukórinn sinn árlega flóamarkað í Tryggvaskála á Selfossi sem staðsettur er við brúarsporðinn. Margt eigulegra muna verður á boðstólum; smátt og stórt, mjúkt og hart, skart og skraut, skæði og klæði, bækur og blöð, plötur og diskar, nýtt og notað. Allur varningurinn er seldur á mjög hóflegu verði. Einnig verða heimabakaðar kökur og annað ljúfmeti til sölu ásamt kaffi og nýbökuðum vöfflum með rjóma. Á föstudag verður opið frá kl. 14.00 til 19.00 og laugardag frá kl. 10.00 til 17.00. Flóamarkaðurinn er liður í fjáröflun fyrir söngferðalag kórsins til Danmerkur og Svíþjóðar nú í júní. Vonast Jórurnar til þess að sem flestir noti þetta tækifæri til að gera góð kaup á skemmtilegum markaði sem er orðinn fastur liður í bæjarlífinu í Árborg.