Kvennakórinn Ymur á Akranesi heldur jólatónleika í Tónbergi sunnudaginn 16. desember kl. 17.00. Flutt verða íslensk og erlend jólalög.
Stjórnandi er Sigríður Elliðadóttir og undirleikari Lisbeth Dahlin.
Boðið verður upp á heitt kakó, kaffi og smákökur í hléi.
Miðaverð er 2.000 kr. fyrir fullorðna og 1.500 kr. fyrir börn. Ekki verður posi á staðnum.
Forsala aðgöngumiða verður í Bókasafni Akraness.