Jólastemmning var á tónleikum í Ísafjarðarkirkju síðasta sunnudagskvöld þar sem kórsöngur og hörpuhljómar spiluðu stærsta hlutverkið.
Flutt voru ljúf jólalög og leikið undir á hörpu en hápunktur tónleikanna var kórverkið A Ceremony of Carols eftir Benjamin Britten sem stúlknakór Tónlistarskóla Ísafjarðar og Vestfirsku valkyrjurnar sameinuðust um að syngja.
Verkið er skrifað fyrir þrjár raddir og hörpu og inniheldur 11 lög, sem segja m.a. frá fæðingu frelsarans, boðun Maríu og freistingu Adams, en er fyrst og síðast lofgjörð til Guðs. Britten var eitt af höfuðtónskáldum Breta á 20. öld. Eftir hann liggja ótal verk, stór og smá, en hann samdi talsvert af tónlist sérstaklega fyrir börn, m.a. verkið A Ceremony of Carols.
Flytjendur á tónleikunum voru Sophie Schoonjans á hörpu, Barnakór Tónlistarskóla Ísafjarðar, Stúlknakór Tónlistarskóla Ísafjarðar, Kvennakórinn Valkyrjurnar, Helga Margrét Marzellíusardóttir sópran, Arna Björk Sæmundsdóttir alt. Meðleikarar auk Sophie eru Hulda Bragadóttir, píanó/orgel og Jónas Tómasson, flauta.
Stjórnandi er Bjarney Ingibjörg Gunnlaugsdóttir og hefur hún borið mestallan hita og þunga af undirbúningi tónleikanna.