Kyrjurnar er kvennakór sem hefur starfað í fjölda ára. Lagaval er mjög skemmtilegt og fjölbreytt. Æfingar eru á miðvikudögum kl. 19:30 í Friðrikskapellu við Valsheimilið. Nú í haust byrja æfingar aftur eftir sumarfrí miðvikudaginn 16. september kl. 19:30 og vilja kórkonur gjarnan fá fleiri konur í hópinn.
Allar áhugasamar konur eru boðnar velkomnar á opna æfingu miðvikudaginn 16. september.
Hlökkum til að sjá ykkur.