Sunnudagskvöldið 11. mars söng Kvennakór Kópavogs í messu hjá Kvennakirkjunni. Messan var í Seltjarnarneskirkju þar sem séra Auður Eir predikaði. Fermingarbörn áttu stóran hlut í athöfninni ásamt Kvennakór Kópavogs sem söng tvö lög og voru viðtökur kirkjugesta geysigóðar. Messan var tekin upp og verður spiluð í Ríkisútvarpinu. Kórkonur voru ánægðar með kvöldið enda alltaf gaman þegar kallað er eftir kórnum í slík verkefni.