Kvennakórinn Heklurnar heldur vortónleika í Guðríðarkirkju, sunnudaginn 15. maí kl 17:00.
Á efnisskrá tónleikanna er að finna tónlist frá ýmsum löndum í bland við lög eftir íslensk tónskáld svo sem Sigfús Halldórsson, Bubba Morthens og Valgeir Guðjónsson, svo einhver séu nefnd, ásamt nokkrum óperukórum.
Aðgangseyrir er kr. 2000 við innganginn eða kr. 1500 í forsölu.
Hægt er að nálgast miða í forsölu hjá kórkonum eða gegnum tölvupóst á netfangi kórsins.