• Fréttir
  • Tónlistin
    • Útgáfa
      • Freyjukórinn
      • Kvk Akureyrar
      • Kvennakór Suðurnesja
      • Norðurljós
      • Kvk Kaupmannahöfn
      • Léttsveit Rvíkur
      • Kvk Ljósbrá
      • Gospelsystur
      • Seljur
      • Lillukórinn
      • Ymur
      • Kvk Garðabæjar
      • Kvk Hafnarfjarðar
      • Jórukórinn
      • Kvk Reykjavíkur
      • Vox Feminae
    • Landsmót
      • Árið 2020 - Reykjavík
      • Árið 2017 - Ísafjörður
      • Árið 2014 - Akureyri
      • Árið 2011 - Selfoss
      • Árið 2008 - Hornafjörður
      • Árið 2005 - Hafnarfjörður
      • Árið 2002 - Reykjanesbær
      • Árið 1999 - Siglufjörður
      • Árið 1997 - Reykholt í Borgarfirði
      • Árið 1995 - Reykjavík
      • Árið 1992 - Ýdölum
    • Aðildakórar
      • Fyrrverandi aðildarkórar
    • Heiðursviðurkenningar
      • Hrönn Hjaltadóttir
      • Sigurbjörg Aðalsteinsdóttir
      • Aðalheiður Ósk Gunnarsdóttir
      • Gróa María Þorvaldsdóttir
      • Sigríður Anna Ellerup
      • Guðrún Ósk Sæmundsdóttir
      • Heiða Gunnarsdóttir
      • Margrét Pálmadóttir
      • Margrét Bóasdóttir
  • Um Gígjuna
    • Gígjan
    • Tónverkasjóður
    • Fundargerðir
    • Stofnfundur
    • Lög
    • Stjórn
      • Stjórn Gígjunnar 2018-2019
      • Stjórn Gígjunnar 2017-2018
      • Stjórn Gígjunnar 2016-2017
      • Stjórn Gígjunnar 2015-2016
      • Stjórn Gígjunnar 2014-2015
      • Stjórn Gígjunnar 2013-2014
      • Stjórn Gígjunnar 2012-2013
      • Stjórn Gígjunnar 2011-2012
      • Stjórn Gígjunnar 2010-2011
      • Stjórn Gígjunnar 2009-2010
      • Stjórn Gígjunnar 2008-2009
      • Stjórn Gígjunnar 2007-2008
      • Stjórn Gígjunnar 2006-2007
      • Stjórn Gígjunnar 2005-2006
      • Stjórn Gígjunnar 2004-2005
      • Stjórn Gígjunnar 2003-2004
  • Hafa samband
  • Fréttir
  • Forsíða
  • Hafa samband
  • Tónlistin
    • Útgáfa
    • Landsmót
    • Aðildakórar
    • Heiðursviðurkenningar
  • Um Gígjuna
    • Gígjan
    • Tónverkasjóður
    • Fundargerðir
    • Stofnfundur
    • Lög
    • Stjórn
  • 30074169_1661176133951423_1871409583_o

    Landssamband íslenskra Kvennakóra

  • Freyjukórinn
  • jorukorinn2017(1)
  • Kvennakór Reykjavíkur
  • Vortonleikar_2015_Gugga
  • Kvennakor Gardabaejar 1
  • Cantabile1
  • Forsíða
  • Fréttir
  • Íslenski kvennakórinn í Kaupmannahöfn verður með tónleika á Íslandi 25. og 26. maí

Íslenski kvennakórinn í Kaupmannahöfn verður með tónleika á Íslandi 25. og 26. maí

6. maí 2008

Íslenski kvennakórinn í Kaupmannahöfn heldur um þessar mundir upp á 10 ára starfsafmæli sitt. Þær eru á leiðinni til Íslands til þess að taka upp geisladisk. Í tilefni af þeirri vinnu munu þær halda tvenna tónleika á Íslandi: Sunnudaginn 25. maí kl. 20:30 í Reykholtskirkju og mánudaginn 26. maí kl. 20:00 í Seltjarnarneskirkju. Dagskráin spannar gömul íslensk sálmalög með fögrum hljómum, nútímaleg verk með flóknum takti, ættjarðarlög með hjartnæmum texta og ýmislegt þar inn á milli. Verk eftir Báru Grímsdóttur, Þorkel Sigurbjörnsson, Niels la Cour, Michael Bojesen og fleiri. Sigríður Eyþórsdóttir kórstjóri segir frá verkunum og hugmyndinni bakvið gerð geisladisksins. Miðar á tónleikana verða seldir við innganginn og er aðgangseyrir í Reykholti er kr. 1000,- og á Seltjarnarnesi kr. 2000,- Lesið meira um starfssemi Íslenska kvennakórsin í Kaupamannahöfn í þessari frétt.

Fréttatilkynning frá Íslenska kvennakórnum í Kaupmannahöfn
Íslenski kvennakórinn í Kaupmannahöfn heldur um þessar mundir upp á 10 ára starfsafmæli sitt. Kórinn var stofnaður á sínum tíma af framsæknum íslenskum söngkonum í Kaupmannahöfn, sem vantaði metnaðarfullan kór að syngja í. Fyrsti stjórnandi kórsins var söngkonan Ingibjörg Guðjónsdóttir og lagði hún grunn að miklu og ötulu starfi kórsins sem hefur haldist æ síðan. Síðastliðin átta ár hefur Sigríður Eyþórsdóttir cand.mag. í tónlistarfræðum, stjórnað kórnum. Í kórnum eru 18 íslenskar konur búsettar í Kaupmannahöfn, nokkrar námsmeyjar eru á meðal okkar en flestar búa hér fast og starfa. Þrátt fyrir öra flutninga Íslendinga fram og til baka milli Kaupmannahafnar og Íslands hefur þátttaka í kórnum verið ótrúlega stöðug frá upphafi og eru enn um 10 konur í kórnum sem sungið hafa með frá byrjun. Þetta vitnar um mikla samstöðu og ekki minnst metnaðarfullar og markvissar vinnuaðferðir. Aðalverkefni kórsins er að sjálfsögðu að kynna Dönum íslenska tónlistog hefur kórinn í því samhengi komið fram við ótal tækifæri. Þar að auki syngur kórinn mikið fyrir Íslendinga í Kaupmannahöfn og höfum við m.a. oft komið fram í sendiráði Íslendinga í Kaupmannahöfn og erum við stoltar af að hafa fengið að vera fulltrúar þjóðar okkar við þau tækifæri. Eitt höfum við þó aldrei gert og það er að gefa útgeisladisk. Okkur hefur lengi langað til þess, en verið að bíða eftir rétta tækifærinu. Nú er tíminn kominn, kórinn hefur aldrei verið betri, við eigum mikið magn af frábærri tónlist í handraðanum og okkur hefur tekist að semja við einn alfærasta hljóðmann Íslands um samvinnu. Dagana 22. til 26. maí ætlum við að taka upp geisladisk í Reykholti með Sigurði Rúnari Jónssyni (Didda fiðlu) sem ætti að vera öllum landsmönnum kunnur. Á disknum verða íslensk og dönsk verk sem endurspegla það sem okkur finnst skemmtilegast að gera; flytja ný verk eftir ung tónskáld aðallega, en einnig þjóðlög og útsetningar sem eru með til að skapa heildarmynd og sýna sem flestar hliðar á kórsöng almennt og getu kórsins okkar sérstaklega. Í sambandi við upptökuvinnuna höldum við tvenna tónleika á Íslandi: Sunnudaginn 25. maí kl. 20.30 í Reykholtskirkju og mánudaginn 26. maí kl. 20.00 í Seltjarnarneskirkju. Á dagskránni verða verk af geisladisknum komandi. Dagskráin spannar gömul íslensk sálmalög með fögrum hljómum, nútímaleg verk með flóknum takti, ættjarðarlög með hjartnæmum texta og ýmislegt þar inn á milli. Verk eftir Báru Grímsdóttur, Þorkel Sigurbjörnsson, Niels la Cour, Michael Bojesen og fleiri. Sigríður Eyþórsdóttir kórstjóri segir frá verkunum og hugmyndinni bakvið gerð geisladisksins. Miðar á tónleikana verða seldir við innganginn og er aðgangseyrir í Reykholti er kr. 1000,- og á Seltjarnarnesi kr. 2000,-

Eldri fréttir

  • Landsmót Gígjunnar haldið í maí 2023
    31. ágúst 2022
  • Landsmóti frestað til 2023
    25. janúar 2021
  • Verklagsreglur um æfingafyrirkomulag á tímum samkomutakmarkana fyrir kvennakóra innan Gígjunnar
    10. september 2020
  • Landsmót Gígjunnar haldið 16-18 sept 2021
    11. júní 2020
  • Landsmóti Gígjunnar frestað
    14. mars 2020
  • Þorravaka Kvennakórs Garðabæjar
    11. febrúar 2020
  • Jólakveðja
    25. desember 2019
  • Jólatónleikar Kvennakórs Hafnarfjarðar
    20. nóvember 2019
  • Aðventutónleikar Kvennakórs Garðabæjar
    19. nóvember 2019
  • Jólatónleikar Kvennakórs Kópavogs
    18. nóvember 2019
  • Jólatónleikar Léttsveitarinnar
    13. nóvember 2019
  • Kvenna megin
    1. nóvember 2019
  • Aðalfundur Gígjunnar 2019
    28. október 2019
  • Mæðradagstónleikar Kvennakórs Akureyrar
    8. maí 2019
  • Dívur – vortónleikar Kvennakórs Suðurnesja
    3. maí 2019
  • Vortónleikar Kvennakórs Kópavogs
    29. apríl 2019

Gígjan, landssamband íslenskra kvennakóra

  • Kleppsvegur 132, 104 Reykjavík
  • gigjan2003@gmail.com
  • 847 1724
  • 690403 3660
© 2025 Gígjan, landssamband íslenskra kvennakóra