Dagana 13. til 20. júní næstkomandi heldur kvennakórinn Vox feminae í langþráða tónleikaferð til Ítalíu.
Í tilefni ferðarinnar verða haldnir kveðjutónleikar í Dómkirkjunni mánudaginn 30. maí.
Tónleikarnir bera yfirskriftina “Yl og trú andar þú” en á efnisskránni eru trúarleg verk eftir íslenska og erlenda höfunda, verk sem hljóma munu í ítölskum kirkjum og tónleikasölum.
Stjórnandi er Margrét J. Pálmadóttir og undirleikari er Antonía Hevesi.
Á Ítalíu mun Vox feminae halda tónleika í Verona, Piacenza og í Feneyjum, þar sem kórinn mun einnig syngja við messu í Markúsarkirkjunni. Þá mun kórinn taka lagið við nokkur önnur tilefni á ferðalaginu.
Margrét Pálmadóttir nam söng á Ítalíu og hefur hún staðið fyrir ferðum til Ítalíu sem margir kórfélagar hafa tekið þátt í. Þetta er hins vegar fyrsta formlega söngferð Vox feminae til Ítalíu.
Tónleikarnir í Dómkirkjunni á mánudaginn hefjast kl. 20, miðasala er við innganginn og miðaverð er 2.000 krónur.