Kvennakórinn Ljósbrá mun vegna fjölda áskoranna vera með aukatónleika í félagsheimilinu Stað á Eyrarbakka föstudagskvöldið 18. maí kl. 20.00. Tónleikarnir verða mjög fjölbreyttir með bæði íslenskum og erlendum lögum og mun rómantík og ást vera aðalefni tónleikanna. Tónleikarnir eru liður í hátíðinni "Vorskipið kemur" sem stendur yfir á Stokkseyri og Eyrarbakka helgina 18.-20. maí.Vorskipið kemur á Eyrarbakka og Stokkseyri
Það verður mikið um að vera á Eyrarbakka og Stokkseyri helgina 18. - 20. maí þegar Vorskipið kemur! Jassband Suðurlands ásamt kvennakórnum Ljósbrá hefur leikinn á laugardagskvöldinu með fítonskrafti og síðan rekur hver viðburðurinn annan alla helgina. Á laugardeginum verða félagar úr Leikfélagi Selfoss á ferðinni í báðum þorpunum í hlutverkum bændafólks sem komið er í kaupstað. Gestir og gangandi mega búast við að þurfa svara ýmsum spurningum á dönsku, vísa til vegar eða þiggja í nefið, auk þess sem Kvenfélagið mun skarta sínu fegursta í íslenskum búningum frá fyrri tíð. Ljósmyndasýning frá Konungskomunni 1907 opnar í Húsinu á Eyrarbakka, en þar verða einnig tónlistaratriði bæði laugardag og sunnudag. Í Óðinshúsi eru stækkaðar ljósmyndir af fólki frá því um aldamót, þar sem gestir geta stungið höfði í gat og látið taka af sér ekta 19. aldar ljósmynd. Í Hólmarastarhúsinu á Stokkseyri opnar Elvar Guðni myndlistarsýningu sína, auk þess sem fjöldi handverks- og listafólks verður þar að störfum. Flóamarkaður opnar í Ísfold, frystihúsinu á Eyrarbakka, indversk krydd og fleiri exótískar vörur verða í Laujabúð á Eyrarbakka. Rauða húsið á Eyrarbakka verða með jassband á laugardagskvöldinu auk þess sem þeir bjóða upp á hina hrikalegu Drottningarhatta, rjómatertur af því tagi sem hafa ekki sést á Íslandi síðan um aldamótin 1900. ____________ þessi texti er fenginn að láni frá: http://www.arborg.is/
Kvennakórinn Ljósbrá mun vegna fjölda áskoranna vera með aukatónleika í félagsheimilinu Stað á Eyrarbakka föstudagskvöldið 18. maí kl. 20.00. Tónleikarnir verða mjög fjölbreyttir með bæði íslenskum og erlendum lögum og mun rómantík og ást vera aðalefni tónleikanna. Tónleikarnir eru liður í hátíðinni "Vorskipið kemur" sem stendur yfir á Stokkseyri og Eyrarbakka helgina 18.-20. maí.Fréttatilkynning frá Kvennakórnum Ljósbrá
Djassband Suðurlands heldur tónleika ásamt Kvennakórnum Ljósbrá úr Rangárvallasýslu, í Félagsheimilinu Stað á Eyrabakka, föstudaginn 18. maí og hefjast þeir kl. 20.00. Djassband Suðurlands manna þeir Stefán Þorleifsson, píanó, Stefán Ingimar Þórhallsson, slagverk, Trausti Örn Einarsson, gítar og Róbert Dan Bergmundsson, bassa, ásamt söngvörum hljómsveitarinnar. Í Kvennakórnum Ljósbrá eru um 40 konur sem koma bæði úr Rangárvalla- og Árnessýslu. Stjórnandi kórsins er Eyrún Jónasdóttir og hefur hún stjórnað kórnum undanfarin fjögur ár. Efnisskrá tónleikanna er fjölbreytt og má segja að rómantíkin svífi yfir vötnum. Er þar að finna m.a. lög úr þekktum kvikmyndum í bland við sígild dægurlög. Einsöngvarar með kórnum eru Gísli Stefánsson bariton og tveir meðlimir kórsins þær Margrét Harpa Guðsteinsdóttir og Guðríður Júlíusdóttir. Þess má geta að Kvennakórinn Ljósbrá fékk menningarverðlaun Töðugjalda og Sunnlenska Fréttablaðsins síðasta sumar.