Freyjukórinn í Borgarfirði og Karlakór Kjalnesinga bjóða til tónleika í Reykholtskirkju næstkomandi laugardag, 24. mars kl. 17:00. Íslensk tónlist verður í hávegum höfð og bera tónleikarnir yfirskriftina "Senn kemur vor". Aðgangseyrir kr. 1500.- en kr. 1000.- fyrir eldri borgara og fólk yngra en 15 ára.