Sunnudaginn 15. desember kl. 16:00 tekur Kvennakór Kópavogs þátt í aðventutónleikum í Digraneskirkju ásamt Karlakór Kópavogs og Óperukórnum, stjórnendur eru Gróa Hreinsdóttir og Garðar Cortes, píanóleikari er Hólmfríður Sigurðardóttir.
Hluti aðgangseyris rennur til styrktar nýjum línuhraðli Landspítalans því enn vantar nokkuð upp á að greitt verði að fullu fyrir þetta dýrmæta tæki.
Miðar eru seldir hjá kórkonum í forsölu á kr. 2.500 en kosta 3.000 við innganginn og á midi.is.
Kaffiveitingar í boði eftir tónleika.