Landsmót kvennakóra fer fram á Ísafirði dagana 11.-14. maí 2017. Gert er ráð fyrir að mótið hefjist seinni partinn fimmtudaginn 11.maí, með móttökuathöfn og setningu í Íþróttahúsinu á Torfnesi. Engin dagskrá verður sunnudaginn 14.maí þannig að konur geta hvílt sig eftir tónleika og sameiginlegt hátíðarkvöld og nýtt daginn til heimferðar. Búið er að stofna síðu á facebook fyrir mótið: https://www.facebook.com/landsmot2017/?fref=ts Þar verða allar helstu upplýsingar settar inn en einnig er hægt að senda fyrirspurnir á netfangið landsmot2017@gmail.com
Smiðjur hafa verið ákveðnar og þemu í þeim. Allir smiðjustjórar eru búnir að staðfesta þátttöku. Til að byrja með er áætlað að bjóða upp á 5 smiðjur, en hægt verður að bæta einni við, fari þátttaka fram úr björtustu vonum
Smiðjur
BG-smiðja - Margrét Geirsdóttir ásamt Baldri Geirmundssyni
Með ungverskum áhrifum - Beata Joo
Í latino sveiflu - Ingvar Alfreðsson
Skapandi útsetningar og spuni - Hildigunnur Einarsdóttir og Lilja Dögg Gunnarsdóttir
Þvert á stíl - Helga Margrét Marzellíusardóttir
Upplýsingar um lög í smiðjum verða sendar út til kóranna um leið og þau berast og kórarnir þá beðnir um að velja smiðju.
Landsmótslag
Valið var ljóð eftir alþýðuskáld af Hornströndum. Hið unga ísfirska tónskáld Halldór Smárason fékk það hlutverk að semja lag og Halldór afhenti kórnum lagið nú í vikunni.
Sameiginleg lög
Blackbird – Lennon og McCartney
Sway – Demetrio og Beltrán Ruiz
Þannig týnist tíminn – Bjartmar Guðlaugsson
Landsmótslagið – Halldór Smárason
Val á útsetningum er í höndum Bjarneyjar Ingibjargar Gunnlaugsdóttur, kórstjóra Kvennakórs Ísafjarðar.
Skráning
Í janúar sl. sendi mótsnefndin aðildarkórum bréf þar sem boðið var upp á forskráningu. Kórar voru jafnframt beðnir um að staðfesta skráningu fyrir 1.október 2016. Nú hefur verið ákveðið að fresta þessari staðfestingu til 1. nóvember en jafnframt beðið um að greitt verði staðfestingargjald, 8500 krónur á mann. Staðfestingargjaldið er óendurkræft.
Þátttaka virðist ætla að vera góð og þegar þetta er skrifað eru 8 kórar og þar með um 280 konur búnar að skrá sig. Aðildarkórar Gígjunnar eru eðlilega í forgang en ef pláss leyfir verður öðrum kvennakórum sem og stökum kvenkyns félögum í kórum sem hafa áhuga, boðin þátttaka.
Bréfinu fylgdi skjal með upplýsingum um gististaði á Ísafirði og nágrenni og sem sent var kórum í til að auðvelda þeim að finna sér gististað og átta sig á því hvað er í boði. Hver kór sér þó alfarið sjálfur um að bóka gistingu. Nú þegar hefur talsvert verið bókað af gistirými á Ísafirði en næga gistingu er enn að fá í nágrannabyggðarlögum og er aðeins milli 10 og 15 mínútna akstur þangað sem styst er að fara.
Mótsgjaldið
Áætlað er að mótsgjaldið fari ekki yfir 40.000 kr. á þátttakanda. Innifalið í mótsgjaldinu eru:
-
Þátttaka í smiðjum föstudag og laugardag, ásamt léttum kaffiveitingum
-
Sameiginlegar æfingar og tónleikar
-
Óvissuferð (veitingar)
-
Hádegisverðir föstudag og laugardag
-
Kvöldverður föstudag og létt snarl
-
Hátíðarkvöldverður og dansleikur laugardag
-
Undirbúningur og vinna (stjórnendur í smiðjum, æfingum og á tónleikum; tónsmíðar vegna landsmótslags, kórstjórn og hljóðfæraleikur á æfingum og tónleikum o.fl.).
Drög að dagskrá
Fimmtudagur 11.maí
Kl. 16-18 – Mótsgögn afhent, léttar veitingar
Kl. 18 – Sameiginleg æfing á sviði í íþróttahúsi á Torfnesi
Kl. 19 – Kvöldverður, óvissuferð, bryggjuball
Föstudagur 12.maí
Kl. 9:30-11.45 Smiðjur. Á sama tíma málþing fyrir kórstjóra (Þetta er í höndum kórstjóra og ekki innifalið í skráningargjaldi kórkvenna).
Kl. 12.-13 – Hádegisverður /Fundur Gígjunnar
Kl. 13.-14.30 – Frjáls tími
Kl. 14.30-15.30 – Sameiginleg æfing á sviði í íþróttahúsi á Torfnesi
Kl. 16-17 – Frjáls tími
Kl. 17.30 – Léttur kvöldverður og undirbúningur kóranna fyrir tónleika um kvöldið
Kl. 19 – Tónleikar kóranna í íþróttahúsi. Að þeim loknum létt snarl, tónlist og samvera
Laugardagur 13.maí
Kl. 9:30-11.45 – Smiðjur.
Kl. 12-13 – Hádegisverður
Kl. 13.30 – Sameiginleg æfing og undirbúningur fyrir sameiginlega tónleika með afrakstri úr smiðjum og með sameiginlegum kór
Kl. 16-18 – Sameiginlegir tónleikar kóranna
Kl. 19.30 Hátíðarkvöldverður, dansleikur og mótsslit
Sunnudagur 14.maí
Hvíld og heimferðardagur
Íþróttahúsið á Torfnesi, Ísafirði verður “aðal staðurinn” og þar verður:
-
móttaka og skráning
-
hádegisverðir (2x)
-
kvöldverðir (2x)
-
sameiginlegar æfingar
-
tónleikar kóranna
-
hátíðartónleikar
-
1 af smiðjunum
-
(hugsanlega einhver atriði til viðbótar)
Aðrar smiðjur fara fram víðs vegar um bæinn, allt er í göngufæri en ef konur eiga erfitt með gang þurfa kórar að gera ráð fyrir að geta útvegað akstur til að komast á milli.
Landsmótsnefndin fundaði nýlega með kórfélögum og var rætt um vinnuna sem framundan er. Búið er að stofna nefndir til að halda utan um hin ýmsu verkefni sem þarf að vinna. Þá mun Kvennakórinn Norðurljós á Hólmavík mun aðstoða Kvennakór Ísafjarðar við framkvæmd mótsdagana.
Með söngkveðju frá landsmótsnefnd,
Hildur Halldórsdóttir hildur@misa.is s. 8990538
Pernilla Rein pernillarein@gmail.com s. 8207579
Þuríður K. Vilmundardóttir turidurkatrin@hotmail.com s. 8944211