Kvennakór Hafnarfjarðar heldur tónleika í Hásölum við Strandgötu miðvikudaginn 16. nóvember kl. 20:00. Tónleikarnir verða helgaðir íslenskri tungu og fær kórinn til sín góða gesti sem eru kórkonum ekki með öllu ókunnir. Þetta eru kórfélagar úr Karlakór Hreppamanna sem tóku svo einstaklega vel á móti kvennakórskonum síðast liðið vor þegar kórarnir tveir sungu saman á Flúðum og á Selfossi.
Kórkonur munu ekki syngja hefðbundna jólatónleika í ár og bregða þar með út af margra ára hefð. Þess í stað halda þær núna al íslenska tónleika sem bera yfirskriftina Móðurmálið mitt og verða flutt ljóð og lög eftir mörg dáðustu ljóðskáld þjóðarinnar. Má þar fyrst nefna Jónas Hallgrímsson, sem dagur íslenskrar tungu er kenndur við, Hallgrím Pétursson, Tómas Guðmundsson, Megas og fleiri meistara íslenskrar ljóðagerðar. Sem dæmi um lagahöfunda má nefna Sigvalda Kaldalóns, Sigfús Halldórsson, Inga T. Lárusson og Oddgeir Kristjánsson. Það er kórkonum kærkomið tækifæri að fá að rifja upp og flytja öll þessi fallegu íslensku sönglög sem hafa lifað og dafnað með þjóðinni um langan aldur.
Stjórnandi Kvennakórs Hafnarfjarðar er Erna Guðmundsdóttir og píanóleikari er Antonía Hevesi. Stjórnandi Karlakórs Hreppamanna er Edit Molnár og píanóleikari er Miklós Dalmay.
Miðasala á tónleikana fer fram hjá kórkonum og við innganginn og er miðaverð 2.500 kr. Einnig má senda tölvupóst á kvennakor.hafnarfjardar@gmail.com eða skilaboð á Facebook síðu kórsins. Frítt er fyrir börn 12 ára og yngri. Tónleikagestum verður boðið að þiggja kaffi og konfekt í tónleikahléi.