Kvennakórinn Heklurnar eru þessa dagana að undirbúa vortónleika sem haldnir verða í sal Framhaldsskólans í Mosfellsbæ, þriðjudaginn 20. maí, kl. 20. Tónleikarnir eru að þessu sinni í samstarfi við Drengjakór Þorfinnsbræðra.
Lagavalið er fjölbreytt þannig að allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Stjórnendur kóranna eru Vilborg Þórhallsdóttir og Guðbjörg Tryggvadóttir. Undirleikari á tónleikunum er Aðalheiður Þorsteinsdóttir. Einnig leika systurnar Guðlaug Ásgeirsdóttir og Lilja Petra Ásgeirsdóttir með kórnum, önnur á þverflautu og hin á fiðlu. Óvænt atriði verður eftir hlé og einsöngvarar stíga á stokk með drengjakórnum.
Miðaverð er 2000 krónur. Miðar fást hjá kórkonum í síma 864-1230 eða á heklurnar@gmail.com