Sælar allar söngsystur. Nú eru kórar á fullu að staðfesta komu sína á Hornafjörð. Þeir sem enn eiga eftir að greiða staðfestingagjald eru beðnir um að gera það sem allra fyrst og algjör nauðsyn er að tilgreina í hvaða kór viðkomandi er. Best er að kórinn sendi inn eina greiðslu og einnig nafnalista, því borið hefur á því að greiðslur hafi komið inn frá einni og einni konu, án þess að tilgreint sé í hvaða kór viðkomandi er, stundum nafn og kennitölulaust innlegg en því fylgir mikil vinna. Síðar í vikunni koma svo hér inn á vefsetrið þær tegundir vinnuhópa sem verða í boði og hvernig við hugsum það fyrirkomulag. Með kærri kveðju, landsmótnefndin alltaf í stuði, Ingibjörg, Lucia og Erna