Margir vilja ekki heyra minnst á jólin fyrr en 1. desember hið fyrsta. Öðrum veitir ekki af að huga að næstu jólum strax að loknum þeim síðustu. Flestir eru þó sammála um að njóta jólanna og jólastússins hvenær sem undirbúningurinn hefst. Við í Kvennakór Reykjavíkur viljum gera okkar til að bæta á jólastemmninguna og minnum hér á okkar árvissu jólatónleika. Oft höfum við fengið góða gesti til liðs við okkur á tónleikum, bæði einsöngvara og hljóðfæraleikara, en í ár verður fyrirkomulagið með nokkuð breyttu sniði. Heill karlakór mun bætast í okkar fríða hóp. Þetta er Karlakór Kjalnesinga undir stjórn Örlygs Atla Guðmundssonar. Raddir þessa líflega og skemmtilega karlakórs munu blandast okkar í nokkrum fallegum og vel völdum jólalögum, en einnig mun hvor kór um sig flytja sín lög. Saman mynda kórarnir 120 manna hljómmikinn kór með fallega og jólalega dagskrá sem ætti að koma öllum í rétta jólaskapið. Meðal laga á blandaðri efnisskrá má nefna Laudate Pueri e. Mendelssohn, Sálmur 100 e. Tryggva M. Baldvinsson, Jesús þú ert vort jólaljós, The Snow e. Edward Elgar, Jesús þú ert vort jólaljós, Nóttin var sú ágæt ein, Við óskum þér góðra jóla og It´s Beginning to Look a Lot Like Christmas. Allt eru þetta lög sem kveikja minningar um góð jól, og koma fólki í hátíðaskap.
Tónleikarnir verða haldnir í Langholtskirkju, þeir fyrri miðvikudaginn 30. nóvember kl. 20, og hinir síðari laugardaginn 3. desember kl. 16. Miðaverði er stillt í hóf og er forsöluverð hjá kórfélögum beggja kóra kr. 2.500, fyrir börn 6-18 ára kr. 1.500. Við innganginn kostar miðinn kr. 3.000.
Verið velkomin, og góða skemmtun!