Vetrarstarfið hefst hjá Kvennakór Akureyrar með fyrstu æfingu n.k. sunnudag 4. september kl. 17:00 í Brekkuskóla og framundan er spennandi og viðburðaríkur vetur.
Nýjar raddir eru sérstaklega boðnar velkomnar og raddprófanir fara fram 4. og 11. sept. kl. 16:15. Stjórnandi er sem fyrr Daníel Þorsteinsson en nýr formaður er Una Þórey Sigurðardóttir.