Um síðustu helgi, 20-22. mars, fór Kvennakór Hornafjarðar í æfingabúðir að Smyrlabjörgum í Suðursveit. Með þeim í för var Sigrún Þorgeirsdóttir stjórnandi Kvennakórs Reykjavíkur. Sigrún var sérstakur gestur kórsins í þessum æfingarbúðum og sá um raddþjálfun á kórnum, sem heppnaðist afar vel. Vegleg árshátíð með mökum og gestum var svo haldin á laugardagskvöldinu eftir erfiði helgarinnar.