Kvennakór Akureyrar heldur útgáfutónleika sína í Lóni við Hrísalund á Akureyri föstudaginn 10. október kl. 21:00. Sungin verða lög af nýja diskinum "Sólardans á vori" ásamt öðru nýju efni. Við þetta tækifæri kveður kórinn stjórnandann Arnór vilbergsson og fagnar nýjum stjórnanda Jaan Alavere og munu þeir skipta með sér kórstjórn og undirleik á tónleikunum. Komið og fagnið með okkur, takið þátt í frábærri skemmtun og eignist diskinn á gjafverði. Húsið opnar kl. 20:00. Miðaverð kr. 1.000.- Miði og diskur kr. 2.700.-