Fimmtudaginn 3. desember 2015 syngur Senjórítukórinn ásamt Kvennakór Reykjavíkur jólalög í Breiðholtskirkju kl. 20:00. Ýmis jólalög verða sungin af kórunum bæði í sitthvoru lagi og saman. Heitt súkkulaði eftir tónleikana, samsöngur kóra og gesta.
Stjórnandi er Ágota Joó og við flygilinn verður Vilberg Viggósson.
Frír aðgangur og allir velkomnir!