Tónleikar í Þorgeirskirkju
Kvennakór Akureyrar heldur jólatónleika þann 5. desember nk. í Þorgeirskirkju við Ljósavatn í Suður-Þingeyjarsýslu og hefjast þeir kl. 14:00. Með kórnum syngur einsöng Eyrún Unnarsdóttir mezzosópran. Stjórnandi og undirleikari kórsins er Daníel Þorsteinsson.
Á þessum tónleikum er efnisskráin tileinkuð jólunum og aðventunni og meðal annars mun kórinn frumflytja jólalag eftir Jaan Alavere fyrrverandi stjórnanda kórsins sem hann tileinkar kórnum. Einnig fá nokkrar perlur frá Megasi að fylgja með.
Þetta verður því hátíðleg og yndisleg stund í fallegri kirkju.
Miðaverð er 2000 kr. en frítt er fyrir 12 ára og yngri. Ekki verður tekið við greiðslukortum.