Jórukórinn og Sönghópurinn Veirurnar halda tónleika í Hólmaröst á Stokkseyri miðvikudagskvöldið 15. nóvember kl. 20.30. Stjórnendur kóranna eru þær Þóra Fríða Sæmundsdóttir og Hlín Pétursdóttir. Á tónleikunum verður fjölbreytt dagskrá. Auk kórsöngs munu Hlín Pétursdóttir og Ásgeir Eiríksson syngja einsöng og hljóðfæraleikararnir Þórlaug Bjarnadóttir, Jóhann Stefánsson og Petra Sigurðardóttir sjá um undirspil. Sönghópurinn Veirurnar er kammerkór sem hefur starfað í átján ár við góðan orðstír. Jórukórinn sem hefur aðsetur á Selfossi hefur starfað með miklum krafti síðastliðin ár.