Kvennakór Garðabæjar stendur fyrir dansleik föstudaginn, 10. mars í Veitingahúsinu Glæsibæ. Það er enginn annar en Bogomil Font, ásamt stórhljómsveit, sem mun spila fyrir dansi. Húsið verður opnað kl. 22:00 og byrjar hljómsveitin að spila um hálftíma síðar. Miðasala verður við innganginn og er miðaverð aðeins 2500 kr. Hægt verður að kaupa vínveitingar á staðnum fyrir þá sem þess óska. Þetta er einstakt tækifæri til að dusta rykið af dansskónum og skemmta sér og styðja í leiðinni blómstrandi starfsemi Kvennakórs Garðabæjar. Við hlökkum svo sannarlega til að sjá ykkur!