Næstkomandi laugardag, 4. maí heldur Kvennakórinn Seljur sína árlegu vortónleika.
Á efnisskrá eru létt og ljúf lög. Stjórnandi kórsins er Svava Kristín Ingólfsdóttir og undirleikari á píanó er Arnhildur Valgarðsdóttir. Birgir Bragason leikur á kontrabassa og á saxófón er Hans Jensson.
Tónleikarnir verða í Seljakirkju og hefjast kl. 16:00.
Miðaverð er 1.500 kr.