Fyrsta sunnudag í aðventu, þann 27. nóvember, mun Léttsveitin halda tónleika í Hörpunni. Tónleikarnir verða í Eldborg og einsöngvarar með kórnum verða Hildigunnur Einarsdóttir, Valgerður Guðnadóttir og Ívar Helgason. Hljómsveit Aðalheiðar Þorsteinsdóttur spilar með kórnum og stjórnandi að vanda er Jóhanna V. Þórhallsdóttir.
Æfingar hjá Léttsveitinni hófust þann 13. september en þá höfðu ríflega 20 nýjar konur gengið til liðs við kórinn. Það verða því 130 konur sem munu stíga á svið Eldborgar á tónleikunum í nóvember.