Kvennakórinn Ymur á Akranesi heldur tónleika miðvikudaginn 23. maí í Tónbergi, sal Tónlistarskólans á Akranesi kl. 20. Stjórnandi kórsins er Sigríður Elliðadóttir og undirleikari er Lisbeth Dahlin.
Dagskrá tónleikanna verður fjölbreytt og boðið verður upp á kaffiveitingar að hætti kórkvenna.
Miðaverð er kr. 2.500 en frítt er fyrir börn 6 ára og yngri. Afsláttur er fyrir börn, eldri borgara og öryrkja. Miðar eru seldir í forsölu á kr. 2.000 í Bókasafni Akraness. Athugið að ekki er tekið við greiðslukortum.