Héraðsvaka Rangæinga er árlegur viðburður í Rangárvallasýslu og stendur að þessu sinni yfir frá miðvikudeginum 24.október til sunnudagsins 28. október. Alla dagana eru tónleikar og aðrir menningarviðburðir hvarvetna í sýslunni. Á laugardeginum 27. október er skemmtidagskrá í félagsheimilinu Hvolnum á Hvolsvelli. Skemmtunin hefst kl. 14.00 og stendur fram eftir kvöldi. Kvennakórinn Ljósbrá mun halda tónleika sína kl. 14:15. Stjórnandi kórsins er Eyrún Jónasdóttir og er aðgangur að tónleikunum ókeypis.