Kvennakór Akureyrar hóf starfsemina á þessu hausti þann 10. September. Stjórnandi er Sigrún Magna Þórsteinsdóttir og hefur hún stjórnað kórnum frá því í mars 2017. Æfingar eru á sunnudögum og kórfélagar eru um .65 talsins.
Aðalfundur kórsins var haldinn 17. September og var stjórnin sem starfaði á síðasta starfsári endurkjörin. Þórunn Jónsdóttir er formaður, Halla Sigurðardóttir varaformaður, Anna B. Sigurðardóttir gjaldkeri, Valdís Þorsteinsdóttir ritari og Margrét Ragúels meðstjórnandi.
Æfingadagur var haldinn í Brekkuskóla 23 september og æft af krafti fyrir hausttónleikana sem síðan voru haldnir 8. október kl. 17:00 í Akureyrarkirkju. Klukkan 20:00 sama kvöld söng kórinn síðan í Bleikri messu í Akureyrarkirkju en slík messa er haldin þar árlega í október.
Að þessu loknu var tekið til við að æfa á fullu fyrir jólatónleikana sem haldnir verða ´14. Desember. Þessir tónleikar verða nánar auglýstir síðar en ljóst er að þar verður um að ræða fínustu skemmtun þar sem sungin verða bæði hefðbundin og óhefðbundin jólalög við undirleik góðra hljóðfæraleikara.