Miðvikudaginn 21. apríl nk. heldur Freyjukórinn í Borgarfirði vortónleika sína ásamt karlakórnum Söngbræður.
Tónleikarnir verða haldnir í Reykholtskirkju og hefjast kl. 20:30.
Stjórnandi Freyjukórsins er Zsuzsanna Budai og um undirleik sjá Sigurður Jakobsson á bassa
og Viðar Guðmundsson á píanó
Stjórnandi Söngbræðrar er Viðar Guðmundsson og undirleikari á píanó Stefán Jónsson.
Tónleikarnir byrja kl 20.30 og aðgangseyrir er 2000. kr - ath. inn enginn posi
Fögnum sumri með söng....