Jólatónleikar Léttsveitar Reykjavíkur eru tvennir þetta árið í Guðríðarkirkju, Grafarholti. Þeir fyrri voru í gærkvöldi, þriðjudaginn 8. desember og þeir seinni verða á morgun, fimmtudaginn 10. desember kl. 20.
Dagskráin er fjölbreytt, hátíðleg, hress og skemmtileg.
Margrét Eir syngur nokkur lög með kórnum. Aðalheiður Þorsteinsdóttir situr við píanóið, með henni spila Tómas R. Einarsson á bassa og Kjartan Guðnason á slagverk. Gísli Magna stjórnar af sinni alkunnu snilld.
Miðaverð 2.900 kr.