Kvennakór Kópavogs fer inn í söngárið með gleði og eftirvæntingu fyrir spennandi verkefnum vetrarins. Stjórnandi kórsins er hinn frábæri John Gear sem hefur gríðarlegan metnað og lag á að ná því besta út úr kórnum í hinum ýmsu verkefnum. Kórinn sem telur um 50 söngelskar konur, flestar úr Kópavogi hefur verið starfandi í næstum 15 ár. Mikil gróska hefur verið í kórnum undanfarin ár og margar nýjar konur bæst í hópinn. Einnig komu inn í haust „gamlar“ kórsystur og því var kórinn fullmannaður fyrir þetta söngár. Vegna þessa hélt kórinn enga opna æfingu fyrir nýjar konur eins og áður hefur verið á haustin.
Auk vikulegra æfinga frá september hafa verið haldnir tveir langir laugardagar þar sem æft hefur verið af krafti. Sú nýjung var í ár að kórinn tók hluta af öðrum laugardeginum í stefnumótun þar sem farið var í vinnuhópa og framtíðarsýn kórsins var mótuð. Í þessari stefnumótun kom fram að kórkonur voru almennt ánægðar með breiddina á lagavali kórstjórans sem spannar allt frá hinu ljúfa lagi Vetrarnótt til Fat Bottomed Girls með Queen. Einnig mun kórinn vilja geta tekið að sér söng við ýmis tilefni og eiga til þess góðan lagabanka.
Fyrsta uppskera vetrarins verða einmitt jólatónleikar þar sem kórinn fær með sér góða gesti og má vænta þess að ljúfir og hátíðlegir tónar komi tónleikagestum í góða jólastemningu.
Tónleikarnir verða í Fella- og Hólakirkju þann 10. desember kl. 17:30
Miðaverð er 1.500 kr., en frítt er fyrir 12 ára og yngri
Miðasala er hjá kórkonum og við innganginn.