Miðvikudaginn 13. maí 2015 stendur kvennakórinn Vox feminae fyrir vortónleikum í Seltjarnarneskirkju sem bera nafnið Vorkveðja.
Starfsár Vox feminae hefur verið einkar fjölbreytt þar sem kórinn var meðal annars í samstarfi við Reykjavík Barrokk við flutning verksins Gloria eftir Vivaldi. Þá frumflutti Vox feminae verkið Gloria eftir Mist Þorkelsdóttur á Háskólatónleikum í mars síðastliðnum. Einnig var kórinn í samstarfi við aðra kóra sönghússins Domus Vox á tónleikum á sumardaginn fyrsta sem hétu Konur í 100 ár, Slétt og brugðið, og voru tileinkaðir 100 ára afmæli kosningarréttar kvenna.
Á tónleikunum 13. maí nk. verða flutt íslensk söng- og þjóðlög eftir m.a. Jórunni Viðar, Pál Ísólfsson og Inga T. Lárusson.
Tónleikarnir hefjast kl. 20:30 og eru undir stjórn Margrétar J. Pálmadóttur. Píanóleikari tónleikanna er meðstjórnandi kórsins Guðný Einarsdóttir.