Tónleikar Vox Feminae sem halda átti í Reykholtskirkju í Borgarfirði á laugardag falla niður af óviðráðanlegum ástæðum.
Þess í stað mun kórinn syngja við messu á allraheilagramessu, sunnudaginn 1. nóvember kl 14. Að henni lokinni mun kórinn syngja nokkur verk af efnisskrá tónleikanna. Listrænn stjórnandi er Margrét J. Pálmadóttir.