Kvennakór Hafnarfjarðar hefur nú lokið sínu tólfta starfsári sem var viðburðarríkt í alla staði. Á árinu gaf kórinn út geisladisk, fór í æfingarbúðir til Nesjavalla, hélt ýmsa tónleika m.a. "tangó"-vortónleika ásamt Tangósveit lýðveldisins og fór í tónleikaferð til Sauðárkróks. Kvennakór Hafnafjarðar heldur úti vefsetrinu; http://kvennakorinn.org/ þar sem hægt er að fræðast um starfsemi kórsins. Lesið meira um síðasta starfsár Kvennakórs Hafnafjarðar í þessari frétt.Fréttatilkynning frá Kvennakór Hafnafjarðar
Kvennakór Hafnarfjarðar hefur nú lokið sínu tólfta starfsári sem var viðburðarríkt í alla staði. Ákvörðun hafði verið tekin á tíu ára afmæli kórsins að gefa út geisladisk og valin voru þau lög sem kórinn hafði hvað mest gaman af að syngja síðast liðin tíu ár. Æfingar hófust í byrjun september og æft var fyrir upptöku sem fram fór í Fella og Hólakirkju síðustu helgina í september. Upptökustjóri var Sigurður Rúnar Jónsson, Diddi fiðla, fagmennska hans var í fyrirrúmi og hvergi slegið af. Upptakan tókst vel og síðdegis á sunnudeginum voru þau Diddi og Hrafnhildur Blomsterberg kórstjóri ánægð með árangurinn. Unnu þau síðan saman að vinnslu disksins, sem leit dagsins ljós í enda desember. Diskurinn ber nafnið Stiklur en Hildigunnur Rúnarsdóttir hafði á tíu ára afmælinu samið lag fyrir kórinn með því nafni, útsett af Lilju Sólveigu Kristjánsdóttur. Í janúarbyrjun var svo farið að æfa fyrir vortónleikana sem yrðu með tangóívafi og með okkur höfðum við fengið Tangósveit lýðveldisins til samstarfs. Kórinn fór svo í sínar árlegu æfingabúðir 2. til 4. febrúar sem að þessu sinni voru á Nesjavöllum. Þegar nær dró tónleikum var æft með Tangósveitinni, sem skipa þeim Hjörleifi Valssyni , fiðlu, Tatu Kantomaa, bandoneon, Ástvaldur Traustason, harmoniku, Vignir Þór Stefánsson, pianó og Bjarna Sveinbjörnssyni, kontrabassa ásamt einsöngvaranum Jóhanni Friðgeiri Valdimarssyni. Tónleikarnir fóru svo fram 26. apríl í sal SÁÁ og 28. apríl í Hamrinum, sal Flensborgarskóla, fullt var á báðum tónleikunum. Suðræn og seiðandi sveifla tangósins féll tónleikagestum vel í geð. Mikil tilhlökkun ríkti 4. maí þegar kórkonur lögðu af stað norður í land, eða á Sauðárkrók, þar sem Karlakórinn Heimir hafði boðið okkur að halda sameiginlega tónleika með þeim á Sæluviku þeirra norðanmanna. Boðið var í kvöldverð ásamt mökum. Síðan var sameiginleg æfing hjá kórunum. Tónleikarnir voru haldnir í sal Frímúrara, Heimismenn sungu fyrir hlé en við eftir hlé, sungum við hluta af vorprógramminu okkar. Pétur Pétursson einn Álftagerðisbræðra tók áskorun okkar að syngja einsöng í laginu Litli tónlistarmaðurinn. Sameiginlega sungu svo kórarnir þrjú lög. Tónleikagestir kunnu vel að meta og létu óspart ánægju sína í ljós og var hvert sæti skipað. Eftir tónleikana var haldið á dansleik í Ljósheimum þar sem hljómsveitin Von spilaði fyrir dansi og sáu þeir til þess að ekki var autt dansgólfið. Er það samdóma álit kórkvenna að Heimismenn séu heiðursmenn heim að sækja og vonandi eiga heimsóknirnar eftir að verða fleiri. Kórstarfið er bæði gefandi og lifandi í alla staði, ef þið hafið áhuga að koma og starfa með okkur í Kvennakór Hafnafjarðar þá hikið ekki við að hafa samband. Við byrjum æfingar aftur í byrjun september. Upplýsingar veita Steiney (699 0361), Inga Lára (892 1563), Helga M. (897 4821), Ágústa (868 4399) og Gréta (847 8043). Geisladiskurinn Stiklur er til sölu hjá Fjarðarkaupum, Músík og Sport og 12 tónum. Helga Margrét Sveinsdóttir formaður Kvennakórs Hafnarfjarðar http://kvennakorinn.org/